75. ÓSKARSVERÐLAUNAAFHENDINGIN 23. MARS 2003

 

FARA AFTUR Á FORSÍÐU
KVIKMYNDIR.COM

 


ÓSKARSVERÐLAUNIN 2003
Akademían kom aldrei þessu vant nokkuð á óvart þegar Óskarsverðlaunin voru afhent í 75. sinn aðfararnótt mánudags. Hver hefði til dæmis trúað því að rapparinn Eminem fengi Óskarsverðlaun? Lagið hans var reyndar langbesta tilnefnda lagið, en það hefur ekki alltaf ráðið úrslitum hingað til. Sama má segja um besta leikstjórann. Flestir höfðu spáð því að Martin Scorcese fengi eins konar "heiðursverðlaun" sem besti leikstjórinn fyrir Gangs of New York, þrátt fyrir að betri myndir væru í pottinum. Það kom því nokkuð á óvart þegar nafn Romans Polanskis var lesið upp. Ekki fór það þó svo að mynd hans, The Pianist, yrði valin besta myndin, en Chicago tók þau verðlaun, sem og nokkur önnur í leiðinni. Loks kom það skemmtilega á óvart að Adrien Brody var valinn besti leikarinn - og hann þakkaði fyrir sig með ræðu kvöldsins.

Óskarsverðlaunatilnefningarnar voru kynntar þann 11. febrúar. Meðlimir í akademíunni velja tilnefningarnar, hver í sínum flokki, þó velja sérstakar nefndir tilnefningar í flokkunum besta teiknimyndin og besta erlenda myndin. Allir félagar í akademíunni fá að velja tilnefningar í flokknum besta myndin. Atkvæðaseðlar voru sendir til 5816 meðlima snemma í janúar en endurskoðunarstofan PricewaterhouseCoopers sér síðan um að telja atkvæðin. Í kjölfarið eru allar tilnefndar myndir sýndar í Samuel Goldwyn kvikmyndahúsi akademíunnar, auk þess sem sýningar í sérstökum flokkum fara einnig fram í Lundúnum, New York og San Francisco. Allir meðlimir fá að velja vinningshafa í öllum flokkum, með þeim undantekningum að í fimm flokkum (stuttmyndir, heimildarmyndir og erlendar myndir) þurfa meðlimir akademíunnar að staðfesta að þeir hafi séð allar tilnefndu myndirnar.


HALLUR ÖRN JÓNSSON
ÓSKARSTILNEFNINGARNAR 2003
"Árið 2003 er án efa eitt það slakasta í langan tíma hjá bandaríska kvikmyndaiðnaðinum," segir Hallur Örn Jónsson kvikmyndagagnrýnandi í pistli sínum. "Ef ég væri meðlimur í akademíunni þá myndi The Pianist sannarlega hljóta mitt atkvæði." LESA ALLAN PISTILINN

 

BESTA MYNDIN

 

Chicago

Aðrar tilnefningar:
Gangs of New York
The Hours
The Lord of the Rings: The Two Towers
The Pianist

 

BESTI LEIKSTJÓRI

 

"The Pianist" - Roman Polanski

Aðrar tilnefningar:
"Chicago" - Rob Marshall
"Gangs of New York" - Martin Scorsese
"The Hours" - Stephen Daldry
"Talk to Her" - Pedro Almodóvar

 

BESTI AÐALLEIKARI

Adrien Brody - "The Pianist"

Aðrar tilnefningar:
Nicolas Cage - "Adaptation"
Michael Caine - "The Quiet American"
Daniel Day-Lewis - "Gangs of New York"
Jack Nicholson - "About Schmidt"

 

BESTA
AÐALLEIKKONA

Nicole Kidman - "The Hours"

Aðrar tilnefningar:
Salma Hayek - "Frida"
Diane Lane - "Unfaithful"
Julianne Moore - "Far from Heaven"
Renée Zellweger - "Chicago"

 

BESTI AUKALEIKARI

 

Chris Cooper - "Adaptation"

Aðrar tilnefningar:
Ed Harris - "The Hours"
Paul Newman - "Road to Perdition"
John C. Reilly - "Chicago"
Christopher Walken - "Catch Me If You Can"

 

BESTA AUKALEIKKONA

 

Catherine Zeta-Jones - "Chicago"

Aðrar tilnefningar:
Kathy Bates - "About Schmidt"
Julianne Moore - "The Hours"
Queen Latifah - "Chicago"
Meryl Streep - "Adaptation"

 

BESTA TEIKNIMYNDIN Í FULLRI LENGD

"Spirited Away" - Hayao Miyazaki

Aðrar tilnefningar:
"Ice Age" - Chris Wedge
"Lilo & Stitch" - Chris Sanders
"Spirit: Stallion of the Cimarron" - Jeffrey Katzenberg
"Treasure Planet" - Ron Clements

 

HANDRIT BYGGT Á ÁÐUR BIRTU EFNI

 

"The Pianist" - Ronald Harwood

Aðrar tilnefningar:
"About a Boy" - Peter Hedges, Chris Weitz, Paul Weitz
"Adaptation" - Charlie Kaufman, Donald Kaufman
"Chicago" - Bill Condon
"The Hours" - David Hare

 

FRUMSAMIÐ HANDRIT

 

"Talk to Her" - Pedro Almodóvar

Aðrar tilnefningar:
"Far from Heaven" - Todd Haynes
"Gangs of New York" - Jay Cocks, Steve Zaillian, Kenneth Lonergan (saga eftir Jay Cocks)
"My Big Fat Greek Wedding" - Nia Vardalos
"Y Tu Mamá También" - Carlos Cuarón, Alfonso Cuarón

 

LISTRÆN STJÓRNUN

"Chicago" (John Myhre / Gord Sim)

Aðrar tilnefningar:
"Frida" ( Felipe Fernandez del Paso / Hannia Robledo)
"Gangs of New York" (Dante Ferretti / Francesca Lo Schiavo)
"The Lord of the Rings: The Two Towers" (Grant Major / Dan Hennah og Alan Lee)
"Road to Perdition" (Dennis Gassner / Nancy Haigh)

 

KVIKMYNDATAKA

"Road to Perdition" - Conrad L. Hall

Aðrar tilnefningar:
"Chicago" - Dion Beebe
"Far from Heaven" - Edward Lachman
"Gangs of New York" - Michael Ballhaus
"The Pianist" - Pawel Edelman

 

BÚNINGAHÖNNUN

"Chicago" - Colleen Atwood

Aðrar tilnefningar:
"Frida" - Julie Weiss
"Gangs of New York" - Sandy Powell
"The Hours" - Ann Roth
"The Pianist" - Anna Sheppard

 

KLIPPING

"Chicago" - Martin Walsh

Aðrar tilnefningar:
"Gangs of New York" - Thelma Schoonmaker
"The Hours" - Peter Boyle
"The Lord of the Rings: The Two Towers" - Michael Horton
"The Pianist" - Hervé de Luze

 

BESTA ERLENDA MYNDIN

"Nowhere in Africa" - Þýskaland

Aðrar tilnefningar:
"El Crimen del Padre Amaro" - Mexíkó
"Hero" - Kína
"The Man without a Past" - Finnland
"Zus & Zo" - Holland

 

FÖRÐUN

"Frida"
- John Jackson og Beatrice De Alba

Aðrar tilnefningar:
"The Time Machine" - John M. Elliott, Jr. og Barbara Lorenz

 

TÓNLIST

"Frida" - Elliot Goldenthal

Aðrar tilnefningar:
"Catch Me If You Can" - John Williams
"Far from Heaven" - Elmer Bernstein
"The Hours" - Philip Glass
"Road to Perdition" - Thomas Newman

 

LAG

"Lose Yourself" úr "8 Mile"
(Lag: Eminem, Jeff Bass og Luis Resto / Texti: Eminem)

Aðrar tilnefningar:
"Burn It Blue" úr "Frida" (Lag: Elliot Goldenthal / Texti: Julie Taymor)
"Father and Daughter" úr "The Wild Thornberrys Movie" (Lag og texti: Paul Simon)
"The Hands That Built America" úr "Gangs of New York" (Lag og texti: Bono, The Edge, Adam Clayton og Larry Mullen)
"I Move On" úr "Chicago" (Lag: John Kander / Texti: Fred Ebb)

 

HLJÓÐ

"Chicago" - Michael Minkler,
Dominick Tavella og David Lee


Aðrar tilnefningar:
"Gangs of New York" - Tom Fleischman, Eugene Gearty og Ivan Sharrock
"The Lord of the Rings: The Two Towers" - Christopher Boyes, Michael Semanick, Michael Hedges og Hammond Peek
"Road to Perdition" - Scott Millan, Bob Beemer og John Patrick Pritchett
"Spider-Man" - Kevin O'Connell, Greg P. Russell og Ed Novick

 

HLJÓÐVINNSLA

"The Lord of the Rings: The Two Towers" - Ethan Van der Ryn og Michael Hopkins

Aðrar tilnefningar:
"Minority Report" - Richard Hymns og Gary Rydstrom
"Road to Perdition" - Scott A. Hecker

 

SJÓNRÆNAR BRELLUR

 "The Lord of the Rings: The Two Towers" - Jim Rygiel, Joe Letteri, Randall William Cook og Alex Funke

Aðrar tilnefningar:
"Spider-Man" - John Dykstra, Scott Stokdyk, Anthony LaMolinara og John Frazier
"Star Wars Episode II Attack of the Clones" - Rob Coleman, Pablo Helman, John Knoll og Ben Snow

 

HEIMILDARMYND Í FULLRI LENGD

"Bowling for Columbine"
- Michael Moore og Michael Donovan

Aðrar tilnefningar:
"Daughter from Danang" - Gail Dolgin og Vincente Franco
"Prisoner of Paradise" - Malcolm Clarke og Stuart Sender
"Spellbound" - Jeffrey Blitz og Sean Welch
"Winged Migration" - Jacques Perrin

 

STUTT HEIMILDARMYND

 

"Twin Towers"
- Bill Guttentag og Robert David Port


Aðrar tilnefningar:
"The Collector of Bedford Street" - Alice Elliott
"Mighty Times: The Legacy of Rosa Parks" - Robert Hudson og Bobby Houston
"Why Can't We Be a Family Again?" - Roger Weisberg og Murray Nossel

 

STUTT TEIKNIMYND

"The ChubbChubbs!" - Eric Armstrong

Aðrar tilnefningar:
"The Cathedral" - Tomek Baginski
"Das Rad" - Chris Stenner og Heidi Wittlinger
"Mike's New Car" - Pete Docter og Roger Gould
"Mt. Head" - Koji Yamamura

 

STUTTMYND

"This Charming Man (Der Er En Yndig Mand)" -  Martin Strange-Hansen og Mie Andreasen

Aðrar tilnefningar:
"Fait D'Hiver" - Dirk Beliën og Anja Daelemans
"I'll Wait for the Next One... (J'Attendrai Le Suivant...)" - Philippe Orreindy og Thomas Gaudin
"Inja (Dog)" - Steven Pasvolsky og Joe Weatherstone
"Johnny Flynton" - Lexi Alexander og Alexander Buono

 

Heimildir: Fréttatilkynning frá A.M.P.A.S. (Academy of Motion Pictures Arts and Sciences) og fréttir 24. mars 2003.

 

 

Flestar tilnefningar


Chicago - 13

Gangs of New York - 10

The Hours - 9

The Pianist - 7

Frida - 6

The Lord of the Rings: The Two Towers - 6

Road to Perdition - 6

Adaptation - 4

Far from Heaven - 4

About Schmidt - 2

Catch Me If You Can - 2

Spider-Man - 2

Talk to Her - 2
 
 

Pistlar

Hallur Örn Jónsson
Tilnefningar 2003 
LESA ALLAN PISTILINN

Ragnar Trausti Ragnarsson
Óskin um óskarinn
LESA ALLAN PISTILINN

 
 

Brot út sögu Óskarsverðlaunanna

Bréfpressan frá Hollywood
LESA MEIRA

 
 

Sendu póst

kvikmyndir@
kvikmyndir.com