|

National
Lampoon-serían er nú komin verulega til ára
sinna en hún var upp á sitt besta þegar Chevy
Chase var og hét. Nýjasta myndin í seríunni
er svo sannarlega ekki fyrir alla. Hér er
kafað eins lágt og mögulegt er (t.d.
hundasæði og hægðir) í leit að húmor og
ótrúlegt en satt þá fær myndin mann nokkrum
sinnum til að brosa. Ég er almennt ekki
aðdáandi slíks húmors enda afar ódýr.
Það sem Van Wilder hefur þó fram yfir aðrar
slíkar myndir er að hún hefur hjarta.
Van Wilder
þessi hefur komið sér afar vel fyrir í
háskólanum sínum enda búinn að vera þar í
ein sjö ár. Einn daginn ákveður svo faðir
hans að komið sé nóg og ákveður að hætta
að greiða skólagjöldin. Til að leysa þetta
vandamál ákveður hinn afar vinsæli Van
Wilder, ásamt genginu sínu, að koma á fót
partýþjónustu. Hún slær í gegn og er
snobbaður blaðamaður skólablaðsins leikinn
af hinni bráðmyndarlegu Töru Reid sendur út
af örkinni til að skrifa grein um Van.
Auðvitað heillar Van hana upp úr skónum
fúlum kærastanum til mikillar armæðu.
Van Wilder er
leikinn af Ryan Reynolds úr þáttunum
"Two Guys and a Girl" og á hann
stóran þátt í því að gera myndina að
hinni sæmilegustu skemmtun með góðum leik.
Í meðförum hans verður Van afar
viðkunnanleg persóna (ekkert ólíkur Parker
Lewis sem var í sjónvarpinu fyrir mörgum
árum) sem manni er barasta nokkuð annt um. Og
þótt söguþráðurinn sé þunnur og
fyrirsjáanlegur og brandararnir æði misjafnir
að gæðum þá nýtur maður myndarinnar til
enda vegna þess að hann Van Wilder er svo
ágætur. - Hallur
Örn Jónsson
|