|

Gullplánetan er nýjasta afurðin í
langri línu teiknimynda frá Disney. Síðustu
ár hafa verið erfið í teiknimyndabransanum
og hafa fæstar myndir staðið undir
væntingum. Það er því alveg ljóst að
Disney hefur lagt mikið undir í þetta
skiptið í von um að snúa þessari þróun
við. Gullplánetan er feikilega vel
gerð mynd og er greinilegt að engu hefur
verið til sparað.
Sagan er í grunninn byggð
á sögu Roberts Louis Stevensons um Gulleyjuna
(Treasure
Island). Í þessari útgáfu er hins vegar
búið að færa söguna út í geim. Jim
Hawkins er uppreisnargjarn táningur sem
ákveður að leita að Gullplánetunni.
Vandamálið er að fleiri hafa áhuga á
ríkidæminu sem þar á að vera að finna og
fer þar fremstur í flokki John Silver sem er
enn kokkur en í þetta skiptið einhvers konar
vélmenni. Við tekur svo heljarmikið
ævintýri fullt af skylmingum og öðru slíku.
Ég skemmti mér svo sem alveg sæmilega á
þessari mynd og get reyndar vel ímyndað mér
að krakkar eigi eftir að skemmta sér enn
betur. Að vísu verður að segjast að sem
mikill aðdáandi bókar Stevensons þá fóru
ýmsar þær breytingar sem gerðar hafa verið
nokkuð í taugarnar á mér. Myndin er í alla
staði afar vel gerð og fer kröftuglega af
stað. Því miður fer hún að missa dampinn
eftir því sem á líður og er þar
einfaldlega um að kenna handritinu. En eins og
áður sagði þá er ég nokkuð klár á því
að yngstu krakkarnir eigi eftir að hafa gaman
af þessu og þá kannski sérstaklega strákar
þar sem myndin virðist dálítuð gíruð inn
á þá.
-
Hallur Örn Jónsson
|