Tomb Raider  



Tomb Raider er ein af poppkornsmyndum kvikmyndasumarsins árið 2001 bæði hér og í Bandaríkjunum og sem slík er hún ágætlega unnin. Það væri í raun hrós að segja að söguþráðurinn væri þunnur þar sem hann einfaldlega gengur ekki upp innan þess ramma sem gefinn er í þessari mynd. Söguþráðurinn er þó sjaldnast vandamál í myndum sem þessum þar sem hann er langt frá því að vera aðalatriði. Það sem skiptir mestu máli er að fjörið sé mikið, hasarinn sé magnaður og nóg sé um skotbardaga og sprengingar. Ég verð að viðurkenna að ég lét ákveðna hluta söguþráðarins fara á taugarnar á mér en naut samt sem áður hasaratriðana. Á einhverjum auglýsingarspjöldum fyrir myndina mátti sjá spurninguna "Hver er Lara Croft?" Ég spyr á móti "Hver veit ekki hver Lara Croft er?" Myndin er byggð á gríðarlega vinsælum tölvuleikjum um ævintýrakonuna Löru Croft sem er eins konar kvenkyns Indiana Jones. Á síðustu árum hafa verið gerðar nokkrar myndir sem byggja á tölvuleikjum og hafa þær margar hverjar farið fyrir ofan garð og neðan hjá kvikmyndahúsagestum. Tölvuleikirnir um Löru Croft eru hins vegar mjög vinsælir og því ljóst að mynd byggð á þeim myndi vekja nokkra athygli og fá góða aðsókn. Lara sjálf er gríðarlega brjóstagóð og myndarleg ung kona og var því ljóst strax í upphafi að það yrði að vanda val á leikkonu í það hlutverk. Óhætt er að fullyrða að það hafi heppnast mjög vel þar sem Óskarsverðlaunaleikkonan Angelina Jolie (Gone in Sixty Seconds, Girl, Interrupted) stendur sig mjög vel í hlutverkinu auk þess sem hún myndast afar vel. Aðrir leikarar eru fremur lítt þekktir en þó bregður fyrir föður Angelinu, Jon Voight (Pearl Harbor), í hlutverki föður Löru. Einnig mun það væntanlega gleðja aðdáendur bresku gamanþáttanna Brittas Empire og Red Dwarf að hinn eini sanni Chris Barrie fer með hlutverk þjónsins Hillary. Leikstjórinn Simon West á að baki myndir á borð við Con Air og The General´s Daughter sem voru hina ágætustu spennumyndir. Í þetta sinn lét hann sér þó ekki nægja að leikstýra þar sem hann kemur einnig nálægt handritinu. Þrátt fyrir hjálparhönd leikstjórans verður að segjast eins og er að sagan er þunn en á móti kemur að hasaratriðin eru fín, atriðin sem tekin voru á Íslandi koma skemmtilega út og Angelina sjálf er einstaklega falleg. - Guðjón Helgason

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com