The Wedding Planner  



Rómantískar gamanmyndir eru í eðli sínu einfaldar þó þær þurfi alls ekki að vera það. Gott dæmi um vel heppnaða rómantíska gamanmynd er myndin When Harry Met Sally. Hún var fyndin og heillandi og tókst það sem mörgum rómantískum gamanmyndum tekst alls ekki, að hlýja manni um hjartaræturnar um leið og hún kom manni til að hlæja. Í sumum myndum af þessari gerð mistekst þetta hins vegar hrapalega. Loks eru það svo rómantískar gamanmyndir sem teljast hvorki sérlega góðar né gríðarlega slæmar. The Wedding Planner fellur í þann flokk þar sem hún er mjög fyrirsjáanleg en á köflum fremur fyndin. Jennifer Lopez leikur unga konu sem hefur það að atvinnu að skipuleggja brúðkaup en gengur mjög illa að halda utan um ástarlíf sitt. Hún fellur fyrir ungum manni, Matthew McConaughey, sem bjargar lífi hennar en reynist svo vera unnusti eins viðskiptavinar hennar. Það sem fylgir í kjölfarið er mynd sem er oft fyndin en ekki nægilega hugljúf og því miður alltaf mjög fyrirsjáanleg. Lopez (The Cell, Out of Sight) og McConaughey (EdTV, U-571) sýna fremur lítil tilþrif, enda ekki þörf á, og skila sínu. The Wedding Planner er fyndin og aukapersónur krydda hana ágætlega. Hér er hvorki Harry né Sally fyrir að fara en verri afurðir úr þessum geira kvikmyndanna hefur vissulega rekið á fjörur íslenskra bíógesta. - GH

SKOÐA SÝNISHORN ÚR MYNDINNI Á KVIKMYND.IS