The Replacements  



Oft hefur maður á tilfinningunni að sæmilegt handrit sé ekki ein af þeim kröfum sem gerðar eru til mynda í Hollywood. The Replacements er greinileg sönnun þess. Þetta er einfaldlega ein, stór klisja frá upphafi til enda. Stundum getur góður leikur bjargað því sem bjargað verður í slíkum myndum en ekki í þetta skiptið. Keanu Reeves, sem á greinilega að bera myndina uppi, er því miður jafngóður leikari og blómapotturinn í stofunni hjá mér. Gene Hackman, annars frábær leikari, líður fyrir lélegt handrit. Söguþráðurinn er einfaldur: Atvinnumenn í amerískum fótbolta fara í verkfall og gamall þjálfari (Gene Hackman) fær það verkefni að safna saman varaliði. Í því liði eru menn sem einhverra hluta vegna hafa ekki náð árangri í greininni. Varaliðið þarf svo að komast í úrslitakeppnina áður en verkfallinu lýkur. Myndin á að heita gamanmynd og einstöku sinnum brosir maður að hræódýrum bröndurum. Annars líður tíminn við hugleiðingar um það hvort myndin fari nú ekki að enda fljótlega. - Hallur Örn Jónsson