The Ice Harvest  



Það er aðfangadagur og mafíulögmaðurinn Charlie (Cusack) er nýbúinn að ræna yfirmann sinn ásamt félaga sínum Vic (Thornton).  Planið er nógu einfalt, láta lítið á sér kræla um kvöldið og flýja síðan til heitari landa.  Það reynist þó erfitt að láta eins og ekkert hafi gerst þetta eina kvöld og margt sem fer úrskeiðis.  Þetta verður til þess að planið breytist fyrir Charlie og Vic, en spurning er nú að lifa kvöldið af svo þeir geti flúið burt á jóladag.

Leikstjóri myndarinnar er Harold Ramis sem hefur áður sent frá sér einhverjar bestu gamanmyndir seinni tíma, Caddyshack, Ghostbusters og meistaraverk hans, Groundhog Day. Því miður þá hefur hann einnig gert slappar myndir sem hafa hindrað hann í að ná þeirri viðurkenningu sem hann e.t.v. á skilið.  Ég held að þessi mynd, Ice Harvest, hljóti að teljast sem ein af slöppu myndunum hans.

Þessari mynd verður best lýst sem meðalmynd.  Hún er ekki nema lítillega fyndin og ekkert það spennandi.  John Cusack er og hefur aldrei verið neitt nema meðalleikari, hann er ekki endilega lélegur leikari en hann rís aldrei fyrir ofan meðaltalið.  Oliver Platt leikur lítið en skemmtilegt hlutverk og er bjartasta stjarnan í þessari mynd, hann er stórgóður í sínu hlutverki.  Platt er afar vanmetinn leikari sem ætti að fá fleiri góð tækifæri.

The Ice Harvest er alls ekki leiðinleg mynd, hún er ágæt afþreying, drepur tímann.  Það er hins vegar ekkert nýtt í henni, söguþráðinn höfum við oft séð áður á hvíta tjaldinu og ég vissi yfirleitt hvert myndin stefndi og ekkert kom á óvart.  Þetta er einfaldlega ósköp venjuleg, týpísk meðalmynd, hvorki neitt betri né verri. - Davíð Örn Jónsson

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com