The Gift  



Þegar ég var hálfnaður í gegnum "Gjöfina" áttaði ég mig á því að ég hafði opnað sama pakkann oft áður. Myndin sem gerist einhvers staðar í suðurríkjum Bandaríkjanna fjallar um konu leikna af Cate Blanchett sem sér meira en venjulegt fólk. Fyrir tilstilli þessarar náðargáfu flækist hún í morðmál með, því miður, frekar fyrirsjáanlegum afleiðingum. Þetta er ein af þessum formúlumyndum þar sem hinu yfirskilvitlega er blandað saman við venjulegt morðmál en ekki er langt síðan önnur slík mynd, What Lies Beneath, var sýnd hér í kvikmyndahúsum. "Gjöfin" er algerlega laus við allan frumleika og treður allan tímann vel troðnar slóðir. Myndin er samt ekki alvond, leikararnir standa sig ágætlega og á köflum nær smá spenna að myndast. Þó mundi ég ekkert flýta mér að opna þessa gjöf þar sem margir betri pakkar leynast undir tréinu. - HÖJ

SKOÐA SÝNISHORN ÚR MYNDINNI Á KVIKMYND.IS