|

Jólin eru að ganga í garð og Meredith Morton (Sarah
Jessica Parker) fer með kærastanum (Dermont
Mulroney) heim til foreldra hans til að kynnast
tengdafjölskyldunni. Svo vill til að fjölskyldan
er afar samheldin og tekur hinni ofurstressuðu
Meredith ekki opnum örmum. Hún reynir sitt besta
til að falla í kramið en allt virðist ganga á
afturfótunum.
Leikstjóri þessarar myndar er Thomas Bezucha,
sem hefur aðallega unnið í tískubransanum. Hann
hefur aðeins einu sinni áður leikstýrt mynd (Big
Eden, 2000), en þá líkt og nú skrifaði hann líka
handritið. Það er óhætt að segja að honum hafi
sannarlega tekist vel til að þessu sinni. Þrátt
fyrir að myndin sé fyrirsjáanleg á köflum þá er
hér um að ræða stórgóða skemmtun.
Sarah Jessica Parker sýnir stórleik og sannar
enn og aftur að hún er frábær gamanleikkona. Hún
hefur oft verið óheppin með kvikmyndahlutverk,
en The Family Stone hlýtur að vera ein af betri
kvikmyndum hennar til þessa. Flestir
aðalleikararnir í myndinni fara raunar einnig á
kostum, einkum Diane Keaton, Luke Wilson og
Rachel McAdams. Dermont Mulroney (My Best
Friend's Wedding, The Wedding Date og Must Love
Dogs) er hins vegar ekki að sýna okkur neitt sem
við höfum ekki séð áður og virðist hann vera
fastur í hlutverki kærastans.
The Family Stone er bráðfyndin en ljúfsár
gamanmynd sem gæti í raun gengið vel á hvaða
árstíma sem er.
-
María Margrét Jóhannsdóttir
|