The Curse of the Jade Scorpion  



Woody Allen er margfrægur leikstjóri og að mati sumra mistækur mjög. Annaðhvort eru myndirnar hans snilld! Eða þú hatar þær:( Sem betur fer fyrir kvikmyndaunnendur virðist sem svo að Woody sé aftur kominn á gott ról eftir nokkra gúrkutíð og er nýjasta myndin hans, The Curse of the Jade Scorpion, prýðilega góð. Woody skrifar, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í myndinni - eins og svo oft áður. Woody leikur CW Biggs, spæjara sem fæst við það að leysa glæpi fyrir tryggingarfyrirtæki. Inn kemur í fyrirtækið fröken Fitzgerald, sem Helen Hunt leikur listavel, til að gera fyrirtækið hagkvæmara. Á milli þeirra tekst strax innilegt hatur og misklíð og útkoman er einstök skothríð, sem einungis leiftrandi penni Woody Allen gerir svona góð skil. Aldrei hefur undirritaður séð neinni persónu líkt við svona margar tegundir skordýrs í einni mynd! CW Biggs rannsakar innbrot þar sem milljóna virði af skartgripum er stolið. Öll bönd berast að einum manni... engum öðrum en CW Biggs sjálfum! Framdi CW Biggs innbrotin??? Eða hefur hinn dularfulli töframaður Kaili Vernoff einhverja hönd í bagga? Gáta svo flókin að einungis CW Biggs getur leyst málið. Myndin gerist rétt fyrir 1940 og er í anda gamanmynda frá fjórða og fimmta áratug seinustu aldar og nær þeim blæ einstaklega vel. Myndin er faglega unnin og gersamlega heillandi. Vægast sagt ættu flestir að geta skemmt sér á þessari mynd. Þessi mynd skipar sér sess sem ein af betri gamanmyndum Woody Allen. Má með sanni segja að Woody Allen sé kominn aftur og tala ég fyrir munn margra þegar ég segi "velkominn aftur, við söknuðum þín." - Eggert Páll Ólason

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com