Swordfish  



Í byrjun myndarinnar heldur persónan sem John Travolta leikur langa eintölu ţar sem hann gagnrýnir Hollywood. Í ţessari eintölu voru nokkrar setningar sem kveiktu í mér. Í íslenskri ţýđingu lýsir hann ţví yfir ađ vandamáliđ viđ Hollywood sé ađ ţar sé framleitt ótrúverđugt og ómerkilegt drasl. Hverju kennir hann svo um? Ekki slćmum leik, skammsýnri leikstjórn né lélegum samrćđum heldur almennum skorti á raunsći. Persónulega held ég ađ ţađ sé ţó nokkuđ til í ţessu. Ţađ leiđinlega er ađ Swordfish fellur akkurat í ţessa gryfju sem Travolta sjálfur nefnir en myndina skortir illilega raunsći. Ţó verđur ađ gera fyrirvara viđ. Vissulega er ekki eingöngu framleitt drasl í Hollywood ţó nóg sé af ţví og merkilegt nokk ţá fellur Swordfish heldur ekki í ţann flokk. Raunar skemmti ég mér bara ţó nokkuđ vel á Swordfish ţrátt fyrir ýmsa galla, sér í lagi ótrúverđugt og fremur heimskulegt plott sem krefst ţess ađ áhorfandinn sendi alla skynsemi í 100 mínútna frímínútur. Hugh Jackman (X-Men) leikur tölvuafbrotamann sem er nýsloppinn úr steininum og má ekki koma nálćgt tölvum lengur. Máliđ er bara ţađ ađ hann er einn sá allra fćrasti á sínu sviđi í heiminum og stórglćponinum John Travolta vantar einmitt ţjónustu hans til ađ rćna einhverjum stútfullum varasjóđi sem bandaríska ríkiđ geymir. Viđ tekur svo ćsileg atburđarás sem inniheldur beru brjóstin hennar Halle Berry, sem hún fékk 50 milljónir fyrir ađ sýna, gíslatökur, jeppaeltingarleiki og fljúgandi strćtisvagna. Já, ekki vantar hasarinn í Swordfish! En ţessi fíni hasar ásamt ágćtis leikstjórn hjá Dominic Sena (Gone in Sixty Seconds) og góđum leik er einmitt ástćđa ţess ađ mér leiddist ekki. Travolta er alltaf bestur í hlutverki vondu gauranna og Hugh Jackman er sannfćrandi sem tölvuafbrotamađur í tilfinningalegri krísu. Ţađ besta er ađ myndin sjálf tekur sig ekki alvarlega og ţar af leiđandi gerir áhorfandinn slíkt hiđ sama og getur ţví sćmilega sáttur notiđ ţessara 100 poppkornsmínútna. Eftir á saknar mađur ţó raunsćisins sem Travolta sjálfum er svo annt um.
- Hallur Örn Jónsson

 
     



Til baka á forsíđu Kvikmyndir.com