Spirit: Stallion of the Cimarron  



Teiknimyndaformið hefur tekið töluverðum breytingum síðustu árin. Ég hef svosem ekki mikið vit á teiknimyndagerð en maður hefur tekið eftir þessum breytingum með því að horfa á myndir á borð við Toy Story 1 og 2, Shrek og Monsters Inc. Myndin um villta folann er nýjasta teiknimynd Dreamwork kvikmyndaversins og enn ein tilraun þeirra til að velta Disney úr sessi í teiknimyndabransanum. Dreamworks hafa gert teiknimyndir á borð við The Prince of Egypt, The Road to El Dorado, Chicken Run og Shrek.

Í þessari mynd er notast við gömlu góðu aðferðina í teiknimyndagerð, þ.e. að teikna með höndunum - hugsið ykkur, ásamt því sem notast er við digital tækni. Útkoman er á köflum tilkomumikil þar sem hestarnir hlaupa um fjöll og firnindi og þá sérstaklega upphafsatriðið. Það verður þó að segjast að með myndum á borð við Shrek er maður orðinn svo góðu vanur að venjulegar teiknimyndir virka fremur flatar í samanburðinum. Tölvuteiknaðar myndir, hvort sem þær eru ný gerð af teiknimyndum eða önnur og ný tegund mynda, en um það má deila, eru líklegast að ryðja hinum úr vegi og e.t.v. er það synd.

Sagan í þessari mynd er einföld og á köflum full af svokallaðri pólitískri réttsýni. Heimurinn er sérlega skýrt afmarkaður svartur og hvítur. Hestar eiga að vera frjálsir, hvítir menn eru vondir við dýrin og indjánar réttsýnir og undirokaðir. Myndin gerist í villta vestrinu og folinn sem hér segir frá er mikil hetja sem álpast í að láta fanga sig en sýnir svo ekki verður um villst að það er erfitt ef ekki ómögulegt að temja hann.

Þetta er því dæmigerð háskasaga dýra að hætti Disney. Hún líður fremur áreynslulaust í gegn og ekki ólíklegt að hún verði nokkuð vinsæl hjá yngri áhorfendum. Það má hrósa handritshöfundum og kvikmyndagerðarmönnunum fyrir að hafa sleppt því að smella inn í myndina einhverri grínpersónu til að létta lund milli atriða. Slíkar persónur geta oft verið óþolandi pirrandi í myndum sem þessum og ákveðin áhætta tekin með því að gera teiknimynd sem er á köflum létt en laus við heimskulegu persónuna. Það hefur lítið þurft að hafa fyrir að talsetja hestana þar sem þeir hneggjast á alla myndina, því er alveg sleppt að láta stórstjörnur ljá þeim raddir þó Matt Damon hafi jú verið fenginn til að tjá hugsanir villta folans. - Guðjón Helgason

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com