Rugrats in Paris  



Hver kannast ekki við litlu krílin í hinum skondnu barnaþáttum Rugrats? Þessir þættir hafa skemmt ungum sem öldnum í um 10 ár og var kvikmyndaútgáfa færð á hvíta tjaldið árið 1998 og vakti mikla lukku. Augljóst var að framhald yrði á kvikmyndum um þessi skemmtilegu kríli og hefur mynd númer 2 nú náð fyrir augu kvikmyndahúsagesta. Sagan er einföld, Chuckie vantar nýja mömmu. Allir fara til Frakklands. Þar er vond kona sem þarf að eignast mann og börn til að fá betri stöðu hjá fyrirtækinu sínu. Hún reynir að næla í pabba Chuckie með skondnum afleiðingum. Myndin er með fyrirsjáanlegri barnamyndum sem ég hef séð um dagana en litlu krílin í salnum virtust skemmta sér af ælu, prump og piss bröndurunum en þeir voru nokkrir. Ég sá talsetta útgáfu af myndinni og verð að segja að það er merkilegt hve oft tekst að talsetja efni á íslensku með þeim afleiðingum að maður greinir illa hvað sagt er. Kannski er ég farinn að heyra illa en ég verð að viðurkenna að ég hefði nú frekar viljað heyra í röddum Susan Sarandon og John Lithgow sem tala fyrir vondu konuna og aðstoðarmann hennar. Ég hef oft skemmt mér vel á barnamyndum og hef séð þessa þætti og þótt þeir hin ágætasta skemmtun. Þessi mynd ber hins vegar merki þess að hafa verið hent saman án umhugsunar til þess eins og hala inn smá pening. Chuckie var minn maður í þessari mynd og fékk alla mína samúð. Ég er viss um að krakkar eiga eftir að hæla þessari mynd og hafa gaman af og er þá tilganginum e.t.v. náð. Ég verð hins vegar að vara foreldrana við og um leið hvetja Hollywood til að hugsa um aumingja foreldrana sem þurfa að fara með börnunum sínum í bíó.
- GH