Remember the Titans  



Árið 1971 eru tveir skólar í suðurríkjum Bandaríkjanna, annar með hvítum nemendum en hinn með svörtum, neyddir til að sameinast í kjölfar þess að aðskilnaðarstefnan er að líða undir lok. Þetta þýðir að skólaliðin í amerískum fótbolta þurfa einnig að sameinast og ráðinn er svartur þjálfari (Denzel Washington). Þetta skapar auðvitað spennu bæði innan vallar sem utan. Til þess að byggja heilsteypt og sigursælt lið þurfa leikmennirnir því að sigrast á fordómum hvor í garð annars sem og fordómum samfélagsins. Myndina, sem byggð er á sannri sögu, er erfitt að flokka. Þetta er raunar íþróttamynd sem tekst á við hið háalvarlega mál sem kynþáttafordómar eru án þess að gamanið sé nokkurn tímann langt undan. Þetta hefur ekki verið auðvelt verkefni en aðstandendum myndarinnar hefur tekist hreint ágætlega upp. Remember the Titans er kannski ekki mjög frumleg eða eftirminnileg mynd en hins vegar er hún vel gerð, áhugaverð og skemmtileg og tekst, í anda góðra Disneymynda, að koma áhorfandanum í gott skap. - HÖJ