|
|
Mýrin | |
![]()
|
Myndin hefst á Landsspítalanum þar sem ung stelpa lætur lífið úr sjaldgæfum sjúkdómi. Á svipuðum tíma finnst lík í Norðurmýrinni af þekktum glæpamanni, hann hefur verið hlotið þungt höfuðhögg og látist samstundis. Lögreglumaðurinn sem tekur að sér málið er Erlendur. Málið vinnst hratt en Erlendur þarf ekki einungis að kljást við það heldur þarf hann einnig að eiga við dóttur sína, Evu Lind sem er djúpt sokkinn í heim eiturlyfjanna. Sagan er alveg pottþétt og mikil vinna greinilega lögð í að gera gott handrit. Það er líka vel unnið úr handritinu, allir aðalleikararnir standa sig mjög vel. Íslensk mynd hefur líklega ekki verið betur leikin. Sérstaklega má nefna Theódór Júlíusson sem leikur Elliða, en fullyrða má að Elliði sé persóna sem munað verður eftir í íslenskri kvikmyndasögu. Ekki má gleyma Ingvari Sigurðssyni, sem sýnir í þessari mynd hvers vegna hann er talinn besti kvikmyndaleikari landsins. Erlendur verður til þökk sé Ingvari, hann gæðir Erlend lífi. Ingvar Sigurðsson á stóran þátt í því hversu vel heppnuð myndin er. Leikstjóri myndarinnar er Baltasar Kormákur. Síðasta mynd hans, A Little Trip to Heaven var mjög vel heppnuð og afar vel gerð. Hún hefur verið góður undirbúningur fyrir hann því hann nýtir reynslu sína af henni greinilega vel. Myndatakan er falleg og fagmannleg sem og klippingin. Eftir þessar mynd hlýtur Baltasar að tróna á toppnum í hópi íslenskra leikstjóra. Mýrin er ein besta mynd, ef ekki sú albesta sem gerð hefur verið á Íslandi. Ef þetta er ekki myndin sem skilar íslenskri mynd óskar þá veit ég ekki hvað þarf til. - Davíð Örn Jónsson
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com