|

Myndin
um gríska brúðkaupið er stelpumynd um stelpu
og er svo sannarlega fyrir stelpur. Myndin
gæti jafnvel flokkast sem hin prýðilegasta
stefnumótamynd. Myndin segir frá hinni
óhamingjusömu Toulu (Nia Vardalos) sem er að
nálgast þrítugt og er enn ógift sem er
reginhneyksli í grískri fjölskyldu því að
konur eiga að mati föður hennar að giftast
góðum grískum manni, eignast grísk börn og
elda góðan, grískan mat. Toula tekur hins
vegar málin í sínar eigin hendur og ákveður
að mennta sig. Í framhaldinu kynnist hún svo
manni að nafni Ian (John Corbett úr Northern
Exposure og Sex in the City) sem er ekki
grískur og því fullkomlega óásættanlegur
í augum fjölskyldunnar sem er stór og hávær
og líkleg til að hræða Ian og fæla hann
burt ef hann kynnist henni.
Myndin er
framleidd af þeim hjónakornum Tom Hanks og
Ritu Wilson en leikstjórinn er Joel Zwick sem
hefur getið sér gott orð sem leikstjóri
hinna ýmsu vinsælu gamanþátta í
Bandaríkjunum og má greina
gamanþáttahandbragðið á þessari léttu og
þægilegu rómantísku gamanmynd. Handritið er
skrifað af aðalleikkonunni sjálfri og er
sagan alveg ágæt en mjög kunnugleg.
Leikararnir standa sig ágætlega í sínum
hlutverkum en frægastir þeirra eru líklegast
Corbett ásamt ´NSync gaurnum Joey Fatone sem
leikur frænda Toulu og kemur lítið við sögu
í myndinni.
Myndin er ekki
sérlega eftirminnileg en líður ljúflega í
gegn meðan á hana er horft og verður
sjaldnast vandræðalega væmin eins og oft vill
verða með rómantískar gamanmyndir. Gríski
þjóðrembingurinn í myndinni er mjög fyndinn
og jaðrar á köflum við að fara út í hið
fáránlega.
Stelpumynd sem
óhætt er að mæla með fyrir stelpur. - Guðjón
Helgason
|