Must Love Dogs  



Must Love Dogs fjallar um Söru Nolan (Diane Lane) sem er á fertugsaldri og reynir að horfa fram á við eftir skilnað. Systir hennar (Elizabeth Perkins) laumar auglýsingu frá Söru inn á "einkamál.is" og þá fyrst fer boltinn að rúlla.

Leikstjórinn er Gary David Goldberg sem mest hefur fengist við sjónvarp (þar má helst nefna þættina Spin City). Lítið er hægt að setja út á leikaravalið þar sem fjölmargir traustir leikarar eru ýmist í auka- eða aðalhlutverki. Diane Lane og John Cusack standa sig vel en einnig ber að minnast á Christopher Plummer og Stockard Channing sem eru skemmtileg í aukahlutverkum sínum.

Must Love Dogs er þægileg mynd á að horfa og á köflum fyndin. Hér er þó ekkert dúndur á ferðinni, sagan er fyrirsjáanleg en myndin þrátt fyrir það hugljúf og einlæg, með gamansömu ívafi. - María Margrét Jóhannsdóttir

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com