Monsoon Wedding  



Það er ekki á hverjum degi sem maður á kost á að sjá indverskar myndir í bíóhúsum hér á landi. Ein af merkilegustu staðreyndum kvikmyndanna er þó sú að fleiri myndir eru gerðar í Indlandi á ári hverju en í nokkru öðru landi í heiminum að Bandaríkjunum meðtöldum. Því var það með vissri spennu í maga sem ég fór á Monsoon Wedding. Myndin stóð undir væntingum að því leyti að hún gaf mér skemmtilega innsýn inn í lífið á Indlandi og eyddi kannski einhverjum fordómum. Gallinn er hins vegar sá að sem kvikmynd þá er hún alls ekkert sérstök. Sagan segir frá brúðkaupi sem skipulagt er af foreldrum tilvonandi hjónakorna sem kynnast fyrst nokkrum dögum fyrir athöfnina. Í kringum þetta eru svo mörg minni plott í gangi sem eru misjafnlega áhugaverð. Meginþemað er þó alltaf ástin í hinum ýmsu myndum. Handritinu er um að kenna því allt annað er vel gert. Sérstakleg er leikurinn góður og greinilega mikið af hæfileikafólki í kvikmyndaiðnaðinum á Indlandi. En sagan stendur einfaldlega ekki undir tveggja klukkustunda sýningartíma sem er synd.
- Hallur Örn Jónsson

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com