|

Alex D. Linz vakti fyrst athygli á sér í Home
Alone 3 í samskonar hlutverki (en þó ekki sama
hlutverkinu) og gerði Macaulay Culkin frægan.
Linz fer hér með tiltilhutverkið í mynd sem
fjallar um dreng sem verður nóg boðið af
yfirgangi hrekkjusvína og skólastjórans í skóla
sínum og ákveður að láta til skarar skríða. Þar
sem hann er að flytja úr bænum telur hann sig
komast upp með hvað sem er. Margt fer þó
öðruvísi en áætlað var.
Hugmyndin er svo sem ekki sérlega galin fyrir
leikna Disney barna- og unglingamynd en hún
hefur ekki verið útfærð nægilega vel. Aðalhetjan
er ekki svöl en vill vera það, vinir hans eru
ekki svalir, en hvers virði er að vera svalur ef
maður glatar vinum og virðingu. Þetta er það sem
er verið að boða og kemst til skila á
einstaklega einfeldningslegan hátt.
Leikararnir standa sig allir alveg ágætlega.
Linz tekst að halda myndinni sæmilega á floti
þrátt fyrir arfaslaka sögu. Af eldri leikurum
eru það grínarinn Larry Miller, í hlutverki
skólastjórans, og Jamie Kennedy (Scream
myndirnar), í hlutverki vonda íssalans, sem eru
nokkuð góðir.
Leikstjórinn Tim Hill er svo sem vanur því að
leikstýra barna- og unglingamyndum hafandi
leikstýrt Muppets From Space. Hann gerir sitt
besta með það sem handritshöfundarnir hafa rétt
honum.
Þetta er mynd sem fellur ef til vill sæmilega í
kramið hjá ungum áhorfendum en það er hætt við
að foreldrum og eldri systkinum kunni að leiðast
á köflum þegar hefndaraðgerðir aðalsöguhetjunnar
fara að virka afar hjákátlegar og yfirdrifnar.
-
Guðjón Helgason
|