Lilo and Stitch  



Þetta er ekki dæmigerð Disney teiknimynd. Aðalhetjan er ekki sérlega aðlaðandi eða krúttleg á nokkurn hátt. Fjölskyldan sem myndin fjallar um er alls ekki til fyrirmyndar. Hegðun Lilo, sem er aðal krakkinn í myndinni, er í fyrstu alls ekki til eftirbreytni. Þetta kemur skemmtilega á óvart í teiknimynd frá fjölskylduvænu teiknimyndaframleiðendunum hjá Disney. Auk þessa er ekki verið að sóa tíma áhorfenda í fullkomlega tilgangslaus tónlistaratriði sem skilja ekkert eftir sig og færa heiminum aðeins enn eitt óþolandi grípandi lag. Þar á ég við lög sem allir fara að söngla ómeðvitað eða endurtaka frasa og línur úr. Hakuna matata einhver?

Sagan hefst á fjarlægri plánetu þar sem óður vísindamaður hefur gert ólögmætar tilraunir og búið til ofurveruna Stitch. Hann er lítill en afar sterkur og sterkbyggður. Hann sleppur úr gæslu og brotlendir geimskipi sínu á jörðinni. Þar villir hann á sér heimildum og kemst í gervi hunds inn á heimili Lilo og systur hennar, Nani, en þær búa á Hawaii. Í kjölfar Stitch koma vísindamaðurinn og óhæfur aðstoðarmaður hans sem talinn er sérfræðingur um jörðina. Þessar geimverur hafa verið gerðar út af örkinni til að sækja Stitch.

Sagan er einföld, persónurnar skemmtilegar og langt frá því að allt sé vaðandi í væmni eins og oft er í Disney teiknimyndum. Boðskapur er einhver og tilfinningasemi smávægileg en þetta er allt í svo miklu lágmarki að aðstandendur myndarinnar verðskulda hrós fyrir.

Í erlendu útgáfunni eru það leikarar á borð við Tiu Carrere, Jason Scott Lee og Ving Rhames sem ljá persónum raddir sínar. Myndin rennur ljúft í gegn og er á köflum mjög fyndin. Auk þess er gaman hvað kóngurinn sjálfur, Elvis Presley, fær mikla athygli. Lilo litla er með mjög þroskaðan tónlistarsmekk og dáir Presley og hlustar á ófá lög með honum í myndinni. Þessi Disney teiknimynd er því prýðileg skemmtun fyrir alla fjölskylduna. - Guðjón Helgason

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com