|

Fyrsti þáttur er
fullur átaka - hún er
"fordæmisgefandi" skutla.
Tilfinningar
angurværðar og einsemdar vakna - kærastinn
"riftir" sambandi þeirra.
Mild
og draumkennd - "eðli málsins"
samkvæmt ákveður hún að fara í Harvard.
Stríðnisleg
- mætir í "góðri trú" í
kanínubúningi en er "gagnályktuð"
útúr hópnum.
Glettin
- henni er "lögjafnað" við verjanda
í stóru sakamáli.
Kröftug
- með "beinum ásetningi" tekst henni
að ná langt og "hinn þriðji
maður" verður hrifinn af henni.
Örlagastefið
úr upphafinu hrakið brott og lýkur myndinni
á sigurvissum nótum.
- Sigþrúður Ármann
|