|
|

“Joy
Ride” er ein af þessum myndum sem láta lítið
yfir sér en koma skemmtilega á óvart. Hér er
um hágæða hrylli-trylli að ræða með John
Dahl við stjórvölinn en hann hefur m.a. gert
hinar ágætu “Red Rock West” og “The Last
Seduction”. Hér segir frá þremur ungmennum
sem kalla yfir sig yfirgengilega reiði vörubílsstjóra
vegna talstöðvargríns sem tvö þeirra gera að
honum. Prakkararnir eru tveir bræður, annar prúður
háskólanemi leikinn af Paul Walker (The Fast
and the Furious) en hinn en óstýrilátur vandræðagemlingur
sem komist hefur í kast við lögin. Sá er
leikinn af Steve Zahn sem einnig má sjá í
“Evil Woman”. Þeir eru á leið að sækja
vinkonu þess fyrrnefnda (Leelee Sobieski) þegar
þeir fremja hrekkinn. Hann fellur vægast sagt
ekki í góðan jarðveg og við tekur æsilegur
eltingaleikur þar sem sögusviðið eru
sveitavegir hins strjábýla suðvesturhluta
Bandaríkjanna.
John
Dal leikur sér hér að myndavélinni á frábæran
hátt og notar alls kyns stílbrögð til að
auka á spennu og óróleika áhorfenda. Hann
kann að nota sér veðrið, viðbrögð
leikaranna, dimm og drungaleg mótel, tónlistina
og jafnvel litlu hlutina eins og fjarlægðina
milli persónanna til að vekja viðbrögð.
Margt í myndinni gæti verið tekið beint upp
úr handbók sjálfs meistara Hitchcock.
Handritið sem, fyrir þá sem hafa áhuga, er að
hluta til skrifað af J.J.Abrams, upphafsmanni
sjónvarpsþáttaraðarinnar “Felicity”, er
hreint ágætt. Við og við reynir þó
alvarlega á trúverðugleika þess en þó næst
meginmarkmiðið vel sem er að skapa spennu.
Persónurnar hafa þó nokkra dýpt, sérstaklega
vandræðabróðirinn sem er bæði óþolandi
og áhugaverður. Steve Zahn skemmir ekki með góðum
leik, sömuleiðis er Sobieski ágæt. Paul
Walker er hér aftur við stýrið og sýnir í
þetta skipti betri leik en í “The Fast and
the Furious”. Hér er um fyrirtaksmynd að ræða
sem uppfyllir öll skilyrði svona mynda og vel
það.
- Hallur Örn Jónsson
|
|