|
|

Joe Dirt er
sveitalubbi af bestu gerð. Hann hlustar á rokk
og ról, ekur um á druslu og er algerlega
grunlaus um allt. Joe Dirt er svokallaður “redneck”,
eða það sem við Íslendingar höfum kallað
“Sigurjón digra” í gegnum tíðina.
Sigurjón þessi varð viðskila við foreldra
sína í fjölskyldufríi þeirra til
Miklagljúfurs þegar hann var 9 ára og hefur
það ætíð verið þrá hans að finna
foreldra sína. Áhorfendum gefst einstakt
tækifæri til að upplifa gleði og sorgir
Sigurjóns við þessa ævintýrafullu leit
hans, áhorfandandum langoftast til mikillar
kátínu. David Spade, einn fremsti sjónvarps-
og bíómyndagrínari BNA stendur sig vel í
hlutverki Sigurjóns digra og kætir áhorfandann
eftir bestu getu. Handritið er ágætt, en
Spade hefur einnig hönd í bagga þar ásamt
David Wolf. Lítið er hægt að segja um þessa
mynd annað en að þetta er fín gamanmynd með
ágætisbröndurum, en sjaldan skellir maður
uppúr. Myndin er hugljúf undir lokin og
bjargar það endinum. Ekki besta gamanmynd sem
þú munt sjá, en er alls ekki svo slæm.
Sigurjón digri er maður sem þú vilt kynnast,
eða er hann kannski búinn að tjalda við
hliðiná þér? -
Eggert Páll Ólason
|
|