|

Teiknimyndir
þær sem ég hef séð á síðustu 12
mánuðum hafa flestar verið mjög
skemmtilegar. Ice Age er engin undantekning.
Myndin gerist, eins og nafnið bendir til, á
ísöld. Þrjú ólík dýr lenda í hremmingum
við að reyna að koma ungabarni aftur til
föður síns. Letidýrið Sid (John Leguizamo),
loðfíllinn Mannfreð (Ray Romano úr Everybody
Loves Raymond) og tígrisdýrið Diego (Denis
Leary) lenda fyrir röð tilviljana í mikilli
ævintýraferð. Þessi misleiti hópur er mjög
skemmtilegur og ævintýri þeirra á köflum
afar kostuleg.
Myndin
er sýnd bæði með ensku og íslensku tali svo
myndin fari ekki fyrir ofan garð og neðan hjá
yngstu áhorfendum. Ég sá myndina með ensku
tali en efast ekki um að talsetningin sé vel
unnin að vanda. Ég man þó að þegar ég var
yngri, sem er ekki svo langt síðan nota bene,
var ekki eins mikið um talsett barnaefni og
barnamyndir eins og í dag og það hefur bara
haft góð áhrif á enskukunnáttu mína.
Kvikmyndafyrirtækinu
Fox hefur tekist að búa til fyndna og
hjartahlýja tölvuteiknaða mynd fyrir alla
fjölskylduna. Tæknilega er myndin mjög vel
unnin og það er hreint frábært að sjá
hvernig teiknimyndir hafa þróast með tilkomu
tölvunnar á síðustu áratugum. Líklega hef
ég þó sagt það áður, t.d. um Monsters Inc.,
en góð vísa er aldrei of oft kveðin.
Dódófuglinn
fær það óþvegið í þessari mynd og koma
þeir fuglar skemmtilega inn í myndina.
Heimskari dýrategund hefur ekki sést á hvíta
tjaldinu síðan Pókemon fyrirbærin fóru að
tröllríða öllu og ég kaus að hunsa þær
merku kvikmyndir. Heimskari mun þó Hómer
Simpson líklega vera ef eitthvað verður úr
kvikmynd um Simpson fjölskylduna sem hefur
verið lofað á allra næstu áratugum. Það
er hins vegar íkorninn með hnetuna sem stelur
myndinni. Það er frábært að fylgjast með
honum rembast eins og margrædd rjúpa við að
grafa hnetuna sína í ísnum.
Fyndin
og skemmtileg fjölskylduskemmtun sem ætti ekki
að svíkja neinn. - Guðjón
Helgason
|