I am Sam  



I am Sam er mynd sem vill afar vel og inniheldur fallegan boðskap þar sem inntakið má finna í frægri laglínu Bítlanna: "All you need is love". En fyrir raunhyggjumann eins og mig þá var það bara því miður ekki nóg. Ég skal útskýra málið.

Sean Penn leikur hér fullorðinn mann sem hefur þroska á við sex ára barn. Hann rétt getur stautað sig fram úr hinum einföldustu textum og vinnur á daginn í kaffisjoppu þar sem hann tekur ávallt við pöntunum viðskiptavina með orðunum: "Afar vel valið af þér!" Einn daginn barnar hann konu sem svo skilur hann eftir með unga stúlku. Fremur ótrúverðugt en sleppum því. Nú þarf hann að ala upp barn næsta óstuddur og þegar nokkur ár eru liðin þá fara barnaverndaryfirvöld að blanda sér í málið. Fer málið fyrir dómstól og fær einfeldningurinn okkar til aðstoðar við sig Michelle Pfeiffer sem leikur kaldranalegan lögfræðing sem tekur málið að sér pro bono einungis til að ganga í augun á samstarfsfélögum sínum. En hún á einnig í erfiðleikum heima fyrir. Tekur svo við barátta um forræði yfir barninu þar sem allir auðvitað læra eitthvað nýtt um sjálfa sig.

Stóra vandamál myndarinnar er einfalt. Þrátt fyrir að reyna staðfastlega að sannfæra mig um að ást væri nóg þá gat ég bara ekki fengið mig til að trúa því að þessi maður væri fær um að ala upp barn. Hegðan hans í myndinni þar sem hann gat varla pantað mat eða átt í eðlilegum samræðum staðfesti einfaldlega bara þá skoðun mína. Ef maður lítur framhjá þessu þá inniheldur myndin þó vissulega marga jákvæða punkta. Sambandi föðurins og ungu stúlkunnar er afar fallega komið til skila og fer ástin ekki framhjá neinum. Er það sennilega mest að þakka frábærum leik annars vegar Sean Penn og hins vegar hinni 8 ára Dakotu Fanning sem gefur honum alls ekkert eftir. Ég man hreinlega bara ekki eftir því að hafa séð svona sannfærandi leik hjá barni í langan tíma. Leggið þetta nafn á minnið. Michelle Pfeiffer er ágæt í sínu hlutverki og lýsir ágætlega þeim breytingum sem hún gengur í gegnum í myndinni.

"I am Sam" er mynd sem leggur sig hart fram við að fá áhorfendurnar til að taka fram vasaklútinn og mun ábyggilega snerta marga. En það breytir því þó ekki að sagan sjálf er ekki nógu sannfærandi og verður þetta því ekki nema meðalmynd. - Hallur Örn Jónsson

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com