High Heels and Low Lifes  



Það hefur löngum verið ein sérgrein breska kvikmyndaiðnaðarins að framleiða hressar og frumlegar glæpamyndir. Á síðustu árum mætti t.d. nefna hina frábæru "Lock Stock and Two Smoking Barrels" og hinar síðri en samt ágætu "Snatch" og "Sexy Beast". Nú er komin ný mynd í þennan hóp sem þó skilur sig frá að því leyti að hér spila kvenmenn einhverja rullu. Ekki nóg með það þá eru þær í aðalhlutverki sem er skemmtileg tilbreyting.

Sagan er á þá leið að tvær ungar vinkonur, önnur leikkona en hin hjúkrunarkona, heyra um rán og ákveða að kúga þjófana og fá hluta af fengnum sjálfar. Áætlunin gengur hins vegar ekki eins vel upp og efni stóðu til þegar glæpaforinginn ákveður að losna við þær með öllum mögulegum ráðum. Við tekur nokkuð skemmtileg atburðarrás sem þó fer aldrei upp úr þriðja gír og er í svolítinn tíma að komast upp í hann. Þó er myndin ágætis afþreying og er það ekki síður að þakka skemmtilegum glæpamönnunum sem eru afar vel leiknir en hetjunum tveimur. Þær eru leiknar af Mary McCormack og Minnie Driver (Good Will Hunting, Grosse Point Blank) og ferst þeirri síðarnefndu það betur úr hendi enda reglulega fær leikkona. Þess má geta að handritshöfundurinn, Simon Fuller, á heiðurinn að myndinni "Spice World" en við skulum nú samt ekki alveg afskrifa hann vegna þess. Þessi mynd um tvær klárar stelpur er góð viðbót í fyrrnefndan flokk þó að hún verði seint talin með þeim eftirminnilegri. - Hallur Örn Jónsson

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com