|

Ég
hef ekki séð söngleikinn um Hedwig sem hefur
verið nokkurs konar "költ-hit" hin síðari
ár þannig að ég vissi ekki alveg hverju ég
ætti við að búast þegar ég sá myndina.
Eftir að ég hafði séð hana vissi ég þó að
ég hefði frekar viljað sjá söngleikinn.
Hedwig þessi er misheppnaður kynskiptingur frá
gömlu Austur-Berlín sem er endurskýrð í höfuðið
á móður sinni. Eftir fall múrsins flýr hún
hið þrúgandi líf í Austur-Evrópu til
Bandaríkjanna í von um frægð og frama á tónlistarsviðinu.
En lífið þar er ekki glans á rósum og þarf
hún að takast á við hin ýmsu vonbrigði.
Hinn tiltölulega óþekkti John Cameron
Mitchell skrifar handritið og leikur aðalhlutverk
myndarinnar. Það seinna ferst honum ágætlega
úr hendi þó stundum eigi hann til að
ofleika. Handritið er hins vegar einfaldlega
fremur óspennandi. Þetta er óheillandi saga
sem er alltaf við og við trufluð með háværum
skrautsýningum í formi laga sem eiga að útskýra
hugarástand Hedwig. Tónlistin var ágæt en það
vantaði samt að straumurinn færi um mann eins
og vill gerast þegar svona verk eru sett á svið.
Því mæli ég frekar með að fólk athugi söngleikinn
áður en leiðin er lögð í bíó.
- Hallur
Örn Jónsson
|