Harry Potter and the Sorcerer's Stone  



Kvikmyndarinnar um töfrastrákinn Harry Potter hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og er óhætt að segja að hún veldur hvorki lesendum bókanna né öðrum vonbrigðum. Myndin er byggð á bókinni "Harry Potter og viskusteinninn" (Harry Potter and the Philosopher's Stone) eftir breska rithöfundinn J.K. Rowling og segir frá ævintýrum Harry litla Potters sem er alinn upp hjá frændfólki sínu, Dursley-hjónunum, sem koma síður en svo vel fram við hann. Aðstæður hans batna hins vegar til muna þegar honum er boðin innganga í Hogwart galdraskólann og þá hefst ævintýrið fyrir alvöru.

Harry Potter and the Sorcerer's Stone er sannkölluð stórmynd. Hún er um tveir og hálfur tími á lengd, fjallar um eina vinsælustu sögupersónu síðustu ára og umtalið um myndina hefur verið gríðarlegt. Það hefði verið auðvelt að framleiða miðlungsmynd og hagnast samt vel á henni. En framleiðendur Harry Potter myndarinnar hafa augljóslega ákveðið að búa til úrvals mynd - og þeim hefur tekist það. Ekki má heldur gleyma að hrósa leikstjóranum Chris Columbus (Home Alone) sem á heiður skilinn. Það er erfitt að segja hvort hér er um að ræða barnamynd eða fjölskyldumynd. Best væri sennilega að kalla þetta ævintýramynd vegna þess að hún á væntanlega eftir að höfða til mjög breiðs hóps bíógesta, hvort sem er barna eða fullorðinna.

Harry Potter er leikinn af Daniel Radcliffe sem var alls óþekktur áður en Harry Potter ævintýrið byrjaði (en hefur áður leikið í The Tailor of Panama og sjónvarpsmynd um David Copperfield). Það er skemmst frá því að segja að Radcliffe stendur sig nær óaðfinnanlega í aðalhlutverkinu. Börn leika mörg stærstu hlutverkin í myndinni og það vekur sérstaka athygli hversu vel þau standa sig öll - meira að segja "vondi" krakkinn. Fjölmargir stórleikarar koma einnig fram í myndinni, t.d. Richard Harris, Maggie Smith, Alan Rickman, John Cleese og síðast en ekki síst Robbie Coltrane (Cracker, GoldenEye, The World is Not Enough) sem stelur senunni í hlutverki Hagrids.

Tæknibrellurnar í myndinni eru einstaklega vel gerðar og útlit myndarinnar einnig stórglæsilegt. Sérstaklega er áhugavert að fylgjast með því hvernig sögusviðið er fært úr raunveruleikanum yfir í töfraveröld Hogwart galdraskólans. Handritið er vel skrifað og glettið á köflum. Helsti galli myndarinnar er hversu löng hún er en þrátt fyrir allt þá kemur það ekki að sök. Leikstjóranum hefur tekist að færa hinn magnaða ævintýraheim Harry Potters yfir á hvíta tjaldið. Niðurstaðan er stórkostlegt ævintýri - sannkallaðir bíógaldrar. - Eggert Páll Ólason

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com