Hannibal  



Margir töldu að það ætti ekki að gera framhald af stórmyndinni The Silence of the Lambs. En nú hefur framhaldsmyndin litið dagsins ljós. Hannibal er vel gerð, spennandi og vel leikin en stenst ekki samanburð við The Silence of the Lambs. Þrátt fyrir það eru áhorfendur stöðugt minntir á fyrri myndina og komast því ekki hjá því að bera myndirnar saman. Það er þó vissulega gaman að "hitta" aftur Hannibal Lecter (Anthony Hopkins) og Clarice Starling (Julianne Moore, sem tekur við hlutverki Jodie Foster). Hins vegar bætir þessi mynd litlu við persónurnar - maður fær á tilfinninguna að hún hafi verið gerð til þess að áhorfendur fengju að endurnýja gömul kynni í stað þess að það væri frá einhverju nýju að segja. Að þessu sögðu þá er engin ástæða til annars en að mæla með Hannibal sem vandaðri Hollywood spennumynd - en þó er rétt að vara viðkvæma við því að sum atriði myndarinnar eru með þeim viðbjóðslegustu sem sést hafa á hvíta tjaldinu í langan tíma.

SKOÐA SÝNISHORN ÚR MYNDINNI Á KVIKMYND.IS