|

Ég verš aš byrja į žvķ aš višurkenna aš ég hef
ekki séš margar myndir eftir žekkta spęnska
leikstjórann Pedró Almodóvar. Myndir hans hafa
fengiš góšar vištökur um allan heim og hann
hefur til dęmis tvisvar veriš tilnefndur til
Óskarsveršlauna fyrir bestu erlendu myndina og
vann žau svo įriš 2000 fyrir hina margrómušu
Todo sobre mi mader eša Allt um móšur mķna.
Žessi nżjasta
mynd Almodóvar fjallar um tvo menn sem eru
įstfangnir af tveimur konum sem liggja ķ dįi.
Önnur er nautabani sem blašamašurinn Marco er
įstafnginn af. Hin er ballerķna en svo viršist
sem hjśkrunarmašurinn Benigno sem annast hana
alla daga sé įstfanginn af henni. Bįšar lentu
konurnar ķ slysum, annars vegar bķlslysi og hins
vegar įrekstri viš nokkuš massķft naut.
Leišir žessara
tveggja manna liggja saman į sjśkarhśsinu og meš
žeim tekst vinskapur enda viršist sem žeir séu į
sama bįti.
Almodóvar segir
hér ķ raun įtakanlega sögu um menn sem hafa lent
ķ erfišleikum og konurnar ķ lķfi žeirra. Honum
tekst aš fį įhorfandann til aš upplifa
persónurnar og atburšarįsina og sagan hreyfir
viš manni hvort sem hśn vekur upp samśš, gleši,
sorg eša einfaldlega reiši og jafnvel višbjóš.
Leikararnir
standa sig prżšilega. Darķo Grandinetti er fķnn
ķ hlutverki hins viškvęma Marco sem mį vart
neitt aumt eša tilfinningažrungiš sjį įn žess aš
tįrast. Žaš er hins vegar Javier Cįmara ķ
hlutverki Benigno sem į myndina. Hann vekur upp
żmsar tilfinningar hjį įhorfendum meš tślkun
sinni į žessum furšulega manni sem veit ekkert
betra en aš annast konurnar ķ lķfi sķnu hvort
sem žęr eru meš mešvitund eša ekki.
Myndin er ķ
grunninn aušvitaš um įst ķ hinum żmsu, brenglušu
eša fallegu myndum. Auk žess er hśn um žaš sem
fólk telur įst en getur veriš lķtiš annaš en
žrįhyggja. Hśmorinn er hins vegar sjaldnast
langt undan og nokkrar senur eru óborganlega
fyndnar. Žaš er sennilega ekki slęm hugmynd aš
leigja sér fleiri myndir eftir Almodóvar sem
fyrst.
-
Gušjón Helgason |