Ghost World  



Ég vil síst af öllu vera vondi kallinn en mér finnst þessi mynd ekkert sérstök. Alvöru gagnrýnendur hafa hlaðið þessa kvikmynd lofi í talsverðan tíma og furðað sig á því af hverju hún fór beint á leigurnar án þess að stoppa í bíó hér á landi. Fyrir mér er það fullkomlega skiljanlegt. Þetta er frekar hæggeng og tíðindalítil kvikmynd og langt í frá einhver snilld.

Ghost World fjallar um unglingsstúlkuna Enid (Thora Birch) eitt sumar þegar hún hefur lokið skólaskyldunni og er að reyna að átta sig á lífinu. Enid er svona jaðarmanneskja, líkar við fátt í umhverfi sínu, heldur varla vinnu og veit ekki hvert hún stefnir í lífinu. Hennar bestu vinir eru Rebecca (Scarlet Johansson) og Seymor (Steve Buscemi), plötusafnari með takmarkaða félagslega hæfileika.

Aðalgalli myndarinnar er frásagnarhraðinn. Leikstjórinn og handritshöfundurinn Terry Zwigoff segir nokkuð hefðbundna sögu um ungt fólk sem er að reyna að feta sig í lífinu, en hann tekur voða langan tíma í það. Þessa mynd hefði mátt klippa aðeins til.

Myndin á þó sína ljósu punkta. Hún er nokkuð fyndin og leikararnir standa flestir vel, sérstaklega Thora Birch og Steve Buscemi, enda hafa þau úr mestu að moða. Aðrar persónur eru verr skrifaðar.

Í heild meðalmynd sem sómir sér betur á myndbandaleigum en í kvikmyndahúsum. - Sigurður Guðmundsson

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com