|

Hinar föstudagsmyndirnar hans Ice Cube, þ.e. Friday og Next Friday,
hljóta að hafa farið mjög vel í
kvikmyndahúsagesti fyrst hann hefur ákveðið
að gera eina til viðbótar. Hann hefur meira
að segja fengið þá snilldarhugmynd að láta
hana gerast um jólin. Ekki veit ég hverslags
gríngimsteinar hinar myndirnar hafa verið en
þessi er nett kartafla í skóinn svona rétt
fyrir jólin.
Ísmolinn
sjálfur og frændi hans Day Day (Mike Epps)
leigja saman hjá gribbu sem vill fá leiguna
borgaða. Þeir lenda í því að maður
klæddur sem jólasveinn stelur jólagjöfunum
þeirra og leigupeningunum á
þorláksmessukvöld. Þeir eru því í vondum
málum því gribban hótar að siga
vöðvastæltum syni sínum á þá og leyfa
honum að riðlast hressilega á þeim ef þeir
ekki borga leiguna á aðfangadagskvöld.
Sonurinn er víst nýkominn úr fangelsi eftir
12 ára dvöl í þröngum vistaverum með
karlmönnum. Því næst mæta þeir í vinnu
sem öryggisverðir í vafasamri
verslunarmiðstöð og svo rekur hver
vitleysisleg senan aðra í einn og hálfan
tíma.
Fyrsta
föstudagsmyndin gekk nokkuð vel í fólk
árið 1995 en þá lék ísmolinn á móti
hinum skemmtilega Chris Tucker (Rush Hour 1 og
2). Í Next Friday og þessari nýjustu afurð
hefur hann hins vegar þurft að sætta sig við
hinn gríðarlega húmorshefta Mike Epps. Það
virðist reyndar sem Cube og Epps séu að mynda
einhverskonar teymi í kvikmyndum þar sem þeir
hafa utan föstudagsmyndanna reynt við
spennugrín með myndinni All About the
Benjamins.
Ég held að
hægt sé að draga þetta saman þannig að
leikurinn er forkastanlegur, og handritið ber
þess augljós merki að hafa verið samið í
hraði til þess eins að hægt yrði að henda
myndinni í sýningar um jólin. Svo á án efa
að reyna að láta hana lifa næstu árin sem
blökkumanna-jóla-grínmyndina hjá
jólamyndaþyrstum almenningi.
Ég leyfi mér
að efast um að fyrri myndinar séu jafn slakar
og þessar en ef svo er þá er löngu kominn
tími á að taka þessa seríu úr sambandi.
-
Guðjón Helgason
|