Finding Forrester  



Nýjusta mynd leikstjórans Gus Van Sant er að einhverju leyti hægt að bera saman við eldri mynd hans Good Will Hunting, en það er þó ekki hægt að halda því fram að þessar tvær myndir séu eins þó þær fjalli um unga menn með mikla hæfileika. Finding Forrester segir frá sextán ára körfuboltakappa, Jamal, sem Robert Brown leikur. Jamal býr í Bronxhverfi New York borgar og kynnist gömlum, geðstirðum rithöfundi að nafni William Forrester, sem Sean Connery leikur af hófsamri snilld. Forrester gaf aðeins út eina bók á ferlinum – eina merkustu bók tuttugustu aldarinnar – en hvarf svo af sjónarsviðinu. Minnir þessi sögupersóna því nokkuð á rithöfundinn J. D. Salinger sem varð frægur fyrir bók sína The Catcher in the Rye. Drengurinn Jamal er afburða námsmaður og mjög efnilegur rithöfundur og tekur Forrester að sér að gerast lærimeistari hans. Finding Forrester er úrvalskvikmynd, vönduð og áhrifarík - sagan er dramatísk og snertir áhorfandann en þó vottar hvergi fyrir væmni eins og oft vill þó verða. Rapparanum Busta Rhymes (Shaft) bregður fyrir í hlutverki bróður Jamal og ferst honum það ágætlega úr hendi. Óskarsverðlaunaleikkonan unga Anna Paquin (Piano) leikur stúlku af auðugum ættum sem vingast við Jamal og hefði vissulega mátt gera meira úr sambandi þeirra í myndinni. Fyrir utan Connery, sem stendur fyrir sínu og gott betur, mæðir mikið á hinum unga Robert Brown. Búast má við miklu af honum í framtíðinni en það er ótrúlegt að hugsa til þess að þetta er hans fyrsta hlutverk í kvikmynd. - Guðjón Helgason