|

Norska
myndin Elling fjallar um þá félaga Elling og
Kjell Bjarne sem kynnast á hæli. Elling hafði
alist upp innilokaður hjá móður sinni og
við dauða hennar er honum um megn að takast
einn á við lífið. Á hælinu kynnist hann
Kjell Bjarne og með þeim herbergisfélögunum
tekst góður vinskapur. Þeir eru síðan
sendir saman aftur út í hinn harða heim og
flytjast til Osló þar sem þeir búa saman í
íbúð og reyna að aðlagast samfélaginu.
Elling reynist erfitt að gera einföldustu
hluti eins og að svara í símann eða fara út
í búð en saman reyna þeir félagar að
takast á við lífið.
Leikstjóranum
Petter Næss hefur tekist að gera mjög hlýja
en um leið fyndna mynd um tvo menn sem eru á
skjön við venjulegt þjóðfélag og þurfa
að taka á öllu sínu við að framkvæma
hluti sem eru sára einfaldir fyrir þá sem
teljast venjulegir eða eðlilegir. Per
Christian Ellefsen (Elling) og Sven Nordin
(Kjell Bjarne) standa sig frábærlega í
aðalhlutverkunum. Elling, aðdáandi Gro Harlem
Brundtland númer eitt, er nákvæmi gaurinn sem
talar vandað mál og þarf að hafa allt
nákvæmlega eins og hann vill hafa það á
meðan Kjell Bjarne er þögla, sterka týpan
sem þó á það til að fá bræðisköst.
Myndin
er sérlega vel gerð og tilnefnd til
óskarsverðlauna nú í ár sem besta erlenda
myndin og er vel að þeirri tilnefningu komin.
Myndin líður ljúflega í gegn og fær mann
til að skella upp úr og vekur mann um leið
til örlítillar umhugsunar. Mannleg mynd um
einstaklinga sem eru aðeins öðruvísi en við
hin. -
Guðjón
Helgason
|