Dracula 2001  



Myndin Dracula 2001, eins og hún nefnist í Evrópu, gekk undir nafninu Dracula 2000 þegar hún var frumsýnd í fyrra í Bandaríkjunum. Myndin hefur því verið nokkurn tíma á leiðinni hingað í sýningar og boðar það oft ekki gott ef myndir eru lengi á leiðinni. Drakúla hefur verið myndaður oft og mörgum sinnum enda skáldsaga Bram Stoker verið innblástur margra góðra kvikmyndagerðarmanna. Þessi nútímaútgáfa af sögunni um Drakúla hefur vaknað í huga Wes Craven (A Nightmare on Elm Street, Scream) sem framleiðir þessa mynd en klipparanum Patrick Lussier (Scream 1, 2 og 3, Halloween H20: 20 Years Later) er falið að leikstýra þessari mynd og tekst svo sem ágætlega upp á margan hátt. Mörg atriði myndarinnar eru skemmtileg en í heildina er handritið það illa unnið að það er ekki hægt að taka þessa mynd alvarlega eins og ætlast er til. Margar flétturnar eru ótrúverðugar og sagan fremur illa fram sett. Leikararnir eru lítt þekktir eða nokkuð þekktir og tekst misjanflega upp. Frægastur þeirra er Christopher gamli Plummer sem leikur vampírubanann Van Helsing. Í Drakúla mynd er æskilegt að Drakúla (sem er hér leikinn af hinum lítt þekkta skoska leikara Gerard Butler) sé ógnvekjandi en í þessari mynd tekst aldrei að gera hann nógu skelfilegan. Drakúla virkar einfaldlega eins og karlkyns fyrirsæta eins og þær eru nú ógnvekjandi. - Guðjón Helgason