Crouching Tiger, Hidden Dragon  



Óhætt er að segja að ég hafi beðið með nokkurri eftirvæntingu eftir nýjustu mynd leikstjórans Ang Lee. Ævintýraleg mynd um tvær bardagahetjur í Kína fyrr á öldum sem eru á höttunum eftir stolnu sverði en í kjölfarið fylgja bardagasenur sem ögra náttúrulögmálum svo ekki sé meira sagt. Í alla staði vel gerð mynd með einstaklega skemmtilegum og vel útfærðum bardagaatriðum. Myndatakan er fyrsta flokks en það sama verður því miður ekki sagt um söguþráðinn, sem er fremur einfaldur, en myndin líður þó ekki fyrir það. Ef hægt er að horfa framhjá fljúgandi fólki og gefa sig ævintýrinu á vald þá er hægt að hafa gaman af þessari mynd. Chow Yun-Fat (Replacement Killers) og Michelle Yeoh (Tomorrow Never Dies) eru yfirveguð í túlkun sinni á bardagahetjunum. Hin unga Ziyi Zhang, sem er í hlutverki Jen Yu, mun koma fram í myndinni Rush Hour 2 á þessu ári og á framtíðina fyrir sér sem leikkona. Ef þú, lesandi góður, ert ekki viss um hvort þig langar að sjá þessa mynd þá langar þig líklega ekki að sjá hana því ekki munu allir hafa smekk fyrir henni. Við hina segi ég: Ekki hika við að skella ykkur í bíó. - GH