Catch Me If You Can  



Nýjasta mynd leikstjórans Stevens Spielbergs er stórskemmtileg en um leið átakanleg saga um heillandi svikahrapp sem þóttist vera flugmaður, læknir og lögfræðingur þó svo hann væri enn á unglingsaldri.

Saga Frank Abagnale yngri (Leonardo DiCaprio) er lyginni líkust. Þó einhverju kunni nú að vera logið þá er hún byggð að mestu á sönnum atburðum. Foreldrar Franks slíta samvistum en í stað þess að velja hvar hann vilji búa, og gera þar með upp á milli foreldra sinna, leggur Frank á flótta. Hann lýgur til um að hann sé aðstoðarflugmaður hjá Pan Am og tekur til við að falsa launaávísanir í gríð og erg. Á stuttum tíma tekst honum að verða sér út um mikla peninga og erfitt er að hafa hendur í hári hans. FBI maðurinn Carl Hanratty (Tom Hanks) gefst hins vegar ekki upp og leggur mikið á sig til að reyna að klófesta kauða og eltir hann um Bandaríkin þver og endilöng og jafnvel út fyrir landsteinana.

Leikararnir standa sig allir með stakri prýði og má segja að DiCaprio batni sem leikari með hverri mynd. Hanks er alltaf traustur og bregst ekki í hlutverki hins alvarlega og einbeitta Hanrattys. Sérstaklega er þó rétt að hæla jaxlinum Christopher Walken sem stendur sig hreint frábærlega í hlutverki föður Franks, en hann átti nú sinn þátt í því að móta og þróa siðferði sonar síns. Auk þeirra bregður þeim Martin Sheen (The West Wing), James Brolin og Jennifer Garner (Alias) fyrir í minni hlutverkum.

Steven Spielberg stendur sig vel hér sem fyrr og tekst að búa til áhugaverða sögu um mjög svo óheiðarlegan, en í grunninn góðan, ungan mann. Traustir samstarfsmenn Spielbergs til margra ára hjálpa til við að gera spennandi sögu að skemmtilegri kvikmyndaupplifun. John Williams sér um tónlistina að vanda og pólski snillingurinn Janusz Kaminski sér um kvikmyndatökuna.

Vel leikin og vel skrifuð mynd frá leikstjóra sem veit yfirleitt nákvæmlega hvernig á að skemmta áhorfendum og jafnvel vekja þá ögn til umhugsunar. - Guðjón Helgason

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com