Brotherhood of the Wolf  



Leikstjóranum Christophe Gans (Crying Freeman) hefur tekist að búa til heillandi og spennandi ævintýramynd sem tekst að skelfa mann alveg mátulega. Myndin fjallar um íbúa í smábæ í Frakklandi á 18. öld sem eru ofsóttir af hræðilegri skepnu sem drepur og limlestir börn og konur í bænum. Konungur sendir því tvo menn út af örkinni til að afla upplýsinga um þessa skepnu. Samuel Le Bihan (Þrír Litir: Rauður) og Marc Dacascos (Crying Freeman, The Island of Dr. Moreau) leika þessa menn en auk þeirra eru leikarar á borð við Vincent Cassel (The Crimson Rivers) og Monica Bellucci (Under Suspicion, Malèna og væntanlega í Matrix 2) í aðalhlutverkum. Þessi mynd er augljóslega nokkuð undir áhrifum frá kvikmyndum á borð við Gladiator og The Matrix hvað útlit, kvikmyndatöku og brellur varðar. Sagan er nokkuð kunnugleg og maður hefur svo sem séð svona skrímslamyndir áður. Hún er hins vegar afar vel heppnuð í þetta sinn og gengur fullkomlega upp innan þess ramma sem settur er. Myndin er um tveir og hálfur tími á lengd en er aldrei langdregin þó það hefði örugglega mátt klippa til hér og þar. Það virkar vel að notast við brellur áðurnefndra mynda í kvikmynd sem þessari sem er á mörkum þess að vera ævintýri í anda Grimsbræðra. Þeir sem hafa gaman af spennandi ævintýramyndum sem nota brellur dagsins í dag á skemmtilega hátt ættu ekki að láta þessa mynd framhjá sér fara. -
Guðjón Helgason

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com