|
|

Bandits,
nýjasta mynd Barry Levinson, er dálítið
undarleg blanda. Hún er spennandi á köflum,
stundum dramatísk og rómantísk en þó umfram
allt fyndin. Bandits er í raun fyrst og fremst
gamanmynd - gamanmynd um tvo skondna fanga, Joe
og Terry (Bruce Willis og Billy Bob Thornton)
sem flýja úr fangavistinni og taka upp á því
að fremja nýstárleg bankarán. Fyrir
tilviljun lendir Cate Blancett í slagtogi með
þeim og þeir verða báðir ástfangnir af
henni.
Bruce
Willis hefur átt það til að leika í
gamanmyndum öðru hverju og stendur sig vel en
vinnur þó engan leiksigur. Er bara gamli góði
Bruce. Sama má segja um Cate Blancett. Billy
Bob stelur hins vegar senunni eins og svo oft.
Handritið er skemmtilegt og hnyttið og eins og
áður segir eru brandararnir helsti kostur þessarar
myndar. Það má því segja að hún hafi komið
skemmtilega á óvart að því leyti. Að öðru
leyti er þetta bara hefðbundin bankaræningjamynd.
En hver hefur ekki gaman af bankaræningjamyndum? Ekkert meistaraverk en dandalagóð! -
Sigþrúður
Ármann
|
|