AntiTrust  



Tilvísanir til fyrirtækisins Microsoft og eiganda þess Bill Gates eru nokkrar í þessari tölvunörda spennumynd ef maður hefur áhuga á því að lesa á milli línanna. Gary Winston (Tim Robbins) rekur fyrirtækið N.U.R.V. sem er með ráðandi aðstöðu í tölvuheiminum. Bandaríska dómsmálaráðuneytið er að rannsaka það og Winston er hataður af tölvunördum um allan heim. Þegar Winston er spurður um Gates svarar hann í gamni: "Hvaða Gates?" Myndin fjallar um unga tölvusnillinginn Milo Hoffman sem leikinn er af Ryan Phillippe (Studio 54, Cruel Intentions). Milo er að klára tölvunám og Winston, sem leikinn er af Tim Robbins (Nothing to Lose, Arlington Road), vill ólmur fá þennan unga snilling og vin hans í vinnu hjá sér til að hjálpa til við nýtt og erfitt verkefni. Milo flytur til Portland ásamt kærustu sinni Alice, leikin af Claire Forlani (Meet Joe Black, Boys and Girls), og fer að vinna fyrir hinn dularfulla Winston. Þegar hann lærir betur inn á fyrirtækið fara að renna á hann tvær grímur en hverjum er þá hægt að treysta? Leikararnir standa sig flestir ágætlega en það var sérstaklega gaman að fylgjast með Robbins í hlutverki dularfulla tölvunördsins Winston. Leikstjórinn Peter Howitt (Sliding Doors) hefur skilað sínu ágætlega en það er eins og það vanti eitthvað til þess að úr verði góður tryllir. Sagan er of einföld og augljós og atburðarásin þróast á of þægilegan hátt þannig að spennan verður afar takmörkuð. Auk þess tekst ekki að skapa neina virkilega samúð með persónunum sem er að nauðsynlegt í mynd sem þessari. Þessir vankantar skrifast að einhverju leyti á Howitt en þó sérstaklega á handritshöfundinn Howard Franklin (The Name of the Rose, The Man Who Knew to Little) sem hefði mátt gera betur. Það er nokkuð gaman að fylgjast með tölvunördunum í sínum heimi og er tæknimálið ef til vill notað full mikið fyrir hinn almenna kvikmyndaáhorfanda.
- Guðjón Helgason

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com