The Accidental Spy  



Þær Jackie Chan myndir sem ég hef séð hafa verið nokkuð skemmtilegar. Fyndin slagsmálaatriði og nett áhættuatriði. Sagan hefur svo sem aldrei verið upp á marga fiskana í þeim myndum sem ég hef séð með honum en það hefur ekki komið mikið að sök. Ég geri oftast kröfu um handrit sem gengur að mestu upp og er ekki móðgun við áhorfandann en þegar kemur að hasarmyndum sem þessum er stundum í lagi að víkja frá þeirri kröfu.

Óhætt er að segja að áhorfendur viti að hverju þeir ganga þegar Jackie Chan myndir eru annars vegar og þess vegna er ég viss um að þessi mynd valdi varla miklum vonbrigðum. Sagan er afar þunn. Jackie vinnur í búð, kemur í veg fyrir að bankaræningjar komist undan og verður hetja. Hann er munaðarlaus en kemst að því að pabbi hans er dauðvona njósnari og þá hefst hasarinn og um leið skýrist nafn myndarinnar, þ.e. hvernig hægt er að slysast til að gerast njósnari.

Þessi mynd er sögð ein dýrasta hasarmynd sem gerð hefur verið í Hong Kong og fjármögnuð af þeim Weinstein bræðrum hjá Miramax. Það er svo sem alveg augljóst að myndin hefur kostað sitt því mikið er um sprengingar og læti.

Það er þó eins og eitthvað vanti. Eitthvað er um hasar en hann hefði alveg mátt vera meiri til þess að fela betur hvað sagan er í raun klaufaleg og fullkomlega ótrúverðug í alla staði. Góð hasarmynd þarf ekki endilega að vera gáfuleg ef hægt er að fela það í látunum hvað hún er í raun vitlaus og það tekst ekki nægilega vel hér.

Myndin er auðvitað talsett og kemur talsetningin nokkuð klaufalega út á köflum en hvenær heppnast talsetning á leiknum myndum vel?

Myndin er semsagt ágæt skemmtun fyrir aðdáendur Jackie en öðrum kann að leiðast milli ágætu hasaratriðana. Jackie er mikill snillingur þegar kemur að því að slást með því sem hendi er næst.

. - Guðjón Helgason

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com