About Schmidt  



Jack Nicholson er Warren Schmidt. Í opnunarsenu myndarinnar sjáum við hann einn í tómri skrifstofu þar sem hann situr og bíður eftir því að seinasta vinnudegi hans ljúki. Heima bíður eiginkona hans til 42 ára sem hann þolir ekki. Þau eiga saman dóttur en samband hans við hana virðist vera afar stirt. Við starfi hans hjá tryggingarfélaginu tekur ungur viðskiptafræðingur sem hleður á hann ódýru lofi á eftirlaunamatsverðinum. En þegar Schmidt spyr hann nokkru seinna hvort hann þurfi einhverrar hjálpar við að komast inn í nýja starfið afþakkar hann það og vísar honum pent á dyr. Það er eins og Warren Schmidt hafi aldrei verið til.

Þessi uppgötvun skellur á honum eins og loftsteinn daginn sem eiginkona hans deyr. Allt í einu stendur Warren Schmidt eftir einn og yfirgefinn. Skömmu síðar tekur hann upp á því að styrkja ungan krakka frá Tanzaníu, Ndugu, að nafni með smá peningaupphæð á mánaðarfresti. Þegar hann skrifar bréf til fóstursonarins fer hann í leiðinni að endurmeta eigið líf og tilveru og skrifar Ndugu langar romsur sem ómögulegt er að hann skilji. Hann fer að velta því fyrir sér hversu miklu hann hefur misst af í lífinu, hversu tómlegt það hefur verið og hversu lítið hann hefur gefið af sér. Ákveður hann að framvegis megi ekki sekúnda fara í súginn og er fyrsta verkefni hans að koma í veg fyrir brúðkaup dóttur sinnar og afar aulalegs tilvonandi eiginmanns hennar.

Í framhaldinu verðum við svo vitni að því þegar þessi sorglegi litli maður skjögrar í gegnum myndina í leit að tilfinningum eða lífsreynslum sem farið hafa framhjá honum hingað til. Á leiðinni hittir hann ýmsa skondnar persónur, s.s. tilvonandi eiginmann dóttur sinnar og afar frjálslynda móður hans sem leikin er af Kathy Bates.

About Schmidt er mynd sem ég get hiklaust mælt með. Persónusköpunin á Warren Schmidt er alveg frábær. Persónan er bæði sannfærandi og áhugaverð þrátt fyrir að hún geti ekki talist merkileg á nokkurn hátt. Skemmir þar ekki fyrir leikur Jack Nicholson sem er prýðilegur. Í höndum hans verður hinn aumkunarverði Schmidt að samúðarfullri persónu. Enda er líka skemmtilegt að sjá hvernig myndavélin leikur sér að Jack eins og hann sé hennar uppáhalds sonur. Aðrir leikarar með Kathy Bates og Dermott Mulroney í fararbroddi standa sig einnig vel.

Þrátt fyrir að varla sé hægt að flokka þetta sem gamanmynd þá er hún þó bráðfyndin á köflum. Leikstjórinn er Alexander Payne sem helst hefur unnið sér það til frægðar að leikstýra myndinni Election. About Schmidt er í sama sótsvarta stíl en þó betri mynd. Hún skilur nefnilega eitthvað eftir sig því ýmsu sem þar kemur fram má virkilega velta fyrir sér í huganum löngu eftir að myndinni lýkur. - Hallur Örn Jónsson

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com