|
|

Það færist
heldur betur fjör í tilfinningalíf hinna
írsku Owen systra, og reyndar bróðurins
líka, þegar draumaprinsinn verður á vegi
þeirrar yngstu en heillar raunar alla
fjölskylduna. Þegar ég segi draumaprinsinn,
þá meina ég draumaprins allra kvenna. Maður
sem virðist hafa þann meðfædda hæfileika
að geta uppfyllt óskir og draumóra hverrar og
einnar konu, hversu mismunandi sem þeir eru.
Adam er þó alls ekki einhver tilfinningalaus
kvennabósi heldur gerir hann
"fórnarlömbunum" meira gott heldur
en vont, gæðir þau raunar nýju lífi. Svona
persónur eru náttúrulega frekar
ótrúverðugar og margt sem gerist í myndinni
fellur ekki síður í þann flokk. Samt sem
áður er hérna um ósköp "sæta"
litla mynd að ræða en einmitt það
lýsingarorð lýsir myndinni best. Maður þarf
að kafa djúpt eftir einhverju innihaldi, hún
er ekki eins fyndin og mér fannst að hún
ætti að vera en engu að síður er hún
afskaplega sæt. Hún er skemmtilega skrifuð og
leikaraliðið skilar sínum hlutverkum vel.
Sérstaklega á Stuart Townsend (Shooting Fish),
sem leikur Adam, hrós skilið fyrir að gera
afskaplega ótrúverðuga og raunar algjörlega
innihaldslausa persónu bara þó nokkuð
skemmtilega. Frances O'Connor og stærsta
stjarna myndarinnar, Kate Hudson (Almost
Famous), standa sig líka vel verkum þrátt
fyrir að írski hreimurinn vefjist á köflum
nokkuð fyrir þeim. "About Adam" er
afskaplega sæt mynd og hin ágætasta
dægrastytting en þó lítið meira.
- Hallur
Örn Jónsson
|
|