|

Hugh
Grant leikur hinn grunnhyggna 38 ára gamla
Lundúnabúa Will sem gerir bókstaflega ekki
neitt. Hann hefur aldrei unnið neitt af viti
heldur lifir hann á stefgjöldum af jólalagi
sem faðir hans gerði vinsælt fyrir 40 árum
síðan. Dögunum er aðallega eytt fyrir framan
sjónvarpið, í búðum eða í baðkarinu.
Kvöldin fara svo í leit að myndarlegum
kvenmönnum í von um stundargaman en ekkert
meira. Málið er nefnilega það að Will
hvorki vill né þarfnast mannlegra sambanda.
Will lýsir sjálfum sér sem eyju - hann er
Ibiza.
Allt þetta
breytist þegar Will fær þá flugu í
höfuðið að gott sé að finna kvenmenn í samtökum
einstæðra foreldra. Þær eiga víst að vera
fremur auðveld bráð og þægilegt að segja
þeim upp. Röð atvika leiðir til þess að
hann kemst í kynni við son einnar slíkrar,
Marcus. Marcus þessi lifir ekki einföldu lífi
og
ákveður að Will eigi að verða nokkurs
konar fósturfaðir sinn. Þótt að
viðtökurnar sem hann fær hjá Will séu
upphaflega kaldar þá fer Will með tímanum
að finna fyrir tilfinningum sem hann hélt að
hann byggi ekki yfir.
Fyrri verk
Weitz bræðra sem leikstýra hér eru American Pie og
Down
to Earth. Þessar eru æði misjafnar
að gæðum en ljóst er allavega af þeirri
fyrri þeir hafa auga fyrir góðri kómedíu.
Grunnhugmyndin að baki About a
Boy er nú reyndar vel þekkt og
skemmst er að minnast Big
Daddy með Adam Sandler. Hér er líka
formúlunni fylgt og kemur því
söguþráðurinn aldrei á óvart. Engu að
síður er það vel unnið úr þessu að
myndin verður hin besta skemmtun. Hún er bráðfyndin og hugljúf í senn en
týnir sér þó aldrei í of mikilli væmni. Og
þó að aðalpersónan sé grunn þá er myndin
gædd furðu mikilli dýpt sem lýsir sér best
í Will sjálfum og samskiptum hans við Marcus
og móður hans. Samtölin eru mörg hver
kostuleg og hjálpar þar mikið frábær leikur
Hugh Grant. Hann sýnir hér og sannar hversu
góður gamanleikari hann í raun og veru er en
allt niður í minnstu svipbrigði hitta beint
í mark. Aðrir leikarar eru líka fínir.
Myndin er unnin
upp úr samnefndri skáldsögu Nick Hornby sem
skrifaði líka bókina að baki myndinni High Fidelity með John
Cusack í aðalhlutverki. Ef þú hafðir gaman
af High Fidelity,
Bridget Jones's Diary og
Notting Hill þá er þetta mynd fyrir þig. - Hallur
Örn Jónsson
|