A Beautiful Mind  



A Beautiful Mind segir frá lífi stærðfræðingsins John Nash sem greindist tiltölulega ungur með geðklofa. Hann lét þó ekki bugast eins og svo margir aðrir heldur barðist áfram við þennan torskilda sjúkdóm. Tókst honum hreint ótrúlega vel til sem sýnir sig m.a. í því að árið 1994 hlaut hann Nóbelsverðlaunin í hagfræði.

Hér er reyndar búið að setja sögu hans í nokkuð bjartari pakkningar. Hlutverk Alicu Nash, eiginkonu hans, er eitthvað stækkað en í raun var John þessi sennilega samkynhneigður. Þó ætti maður ekki að setja þessar breytingar fyrir sig enda er engu að síður um afar merkilegan mann og athyglisverða sögu að ræða.

Það má segja að þó að handritið sé gott þá er það öll framleiðslan sem flytur myndina upp á hærri stall. Hún er næstum óaðfinnanleg. Leikstjórinn Ron Howard stígur varla feilspor. Russell Crowe er líka frábær í hlutverki John sem mun sennilega færa honum óskarinn í ár. Sömuleiðis hlýtur Jennifer Connelly óskarstilnefningu í hlutverki Aliciu konu hans sem stendur með honum í gegnum súrt og sætt. Aðrir leikarar í minni hlutverkum eru líka í góðu formi.

Hér er því um afar mannlega og tilfinningaríka mynd að ræða sem er svo vel úr garði gerð að hún getur ekki annað en snert áhorfandann á einhvern hátt. - Hallur Örn Jónsson

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com