What Happens in Vegas
 

 

 

 

What Happens in Vegas er skemmtileg en auðgleymanleg mynd sem skartar þeim ágætu leikurum Cameron Diaz og Asthon Kutcher. Þau gifta sig "óvart" í Vegas í ölæði og lenda í deilum fyrir dómstólum þegar þau vinna stóra vinninginn í spilakassa daginn eftir brúðkaupið. Dómarinn skipar þeim að reyna að láta hjónabandið ganga upp og það hefur auðvitað í för með sér spaugilegar afleiðingar.

 

Söguþráðurinn er ekki sérlega trúverðugur og atriðin misgóð, en þetta er þó ágætis sumarafþreying. Diaz hnykklar vöðvana í takt við brandara Ashtons og virðast þau ná vel saman í gáskafullri gamanmynd um ástir og peninga.

 

María Margrét Jóhannsdóttir

 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com