U2 - 3D
 

 

 

 

U2 er ein besta hljómsveit allra tíma og eflaust ógleymanlegt að sjá hana á sviði. Það eiga þó ekki allir kost á því, og hér er því komin ný leið til að upplifa hljómsveitina - í þrívídd!

 

Myndin var tekin upp á Vertigo tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar og tekst kvikmyndagerðarmönnunum frábærlega til, enda ekki slæmt að hafa aðalleikara á borð við Bono. Þetta er þó ekki hefðbundin heimildarmynd með viðtölum heldur hreinræktuð tónleikamynd, tæpur einn og hálfur tími af tónleikum. Það jaðrar hins vegar við skemmdarverk að hafa hlé á mynd sem þessari og er rétt að skora á bíóin að sýna hana í heild sinni án hlés, enda nýtur hún sín þannig best. Algjört skylduáhorf fyrir alla U2 aðdáendur.

 

María Margrét Jóhannsdóttir

 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com