|
|
The Mummy: Tomb of the Dragon Emperor | |
![]()
|
Brendan Fraser er mættur aftur í hlutverki Rick O‘Connell í þessu öðru framhaldi af The Mummy. Myndin gerist nokkrum árum eftir atburði seinustu myndar, Rick og eiginkona hans eru sest í helgan stein á sveitasetri sínu í Englandi. Sonur þeirra stundar fornleifauppgröft í Kína og hefur fundið gröf keisarans Han sem ásamt her sínum var breytt í stein þúsundum árum fyrr. Vegna atburðarrásar sem er of flókin til að lýsa hér, þá vaknar Han til lífsins og þarf þá O‘Connell fjölskyldan að bjarga heiminum á ný frá honum. Lögmálið um minnkandi gæði framhaldsmynda er í fullu gildi hér. Fyrsta múmíu myndin sem kom út fyrir einhverjum árum var ágæt skemmtun, framhaldsmyndin verri og er þessi, sú þriðja sú versta. Sagan er útþynnt , óspennandi og ófrumleg. Í þokkabót er myndin illa leikin. Jet Li fer með hlutverk hins illa keisara og framan af er hann eini ljósi punkturinn í myndinni. Persóna hans er þó algjörlega eyðilögð þegar hann breytist í þríhöfða hýdru með vængi. Þá spyr maður sig hvort hann hafi lesið handritið áður en hann tók að sér hlutverkið í þessari skelfilegu mynd.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com