The Happening
 

 

M. Night Shyamalan hefur haft frjálsar hendur allt frá því að fyrsta myndin hans, The Sixth Sense sló í gegn.  Hann fylgdi henni eftir með tveimur ágætis myndum, Unbreakable og Signs en síðan þá hafa myndir hans farið síversnandi.  Að sumu leyti þá lifir hann á fornri frægð, myndir hans eru ávallt kynntar almenningi sem nýjasta myndin frá leikstjóra The Sixth Sense og eftirvæntingarnar eftir því.

Nýjasta myndin hans, The Happening, hefst í Central Park í New York.  Skyndilega klukkan 8:33 að morgni byrjar fólk að hegða sér undarlega og í þúsundavís fremur sjálfsmorð.  Hryðjuverkamenn eru taldir bera ábyrgð á bakteríu sem veldur þessu.  Ekki líður langur tími þar til einkennin finnast í öðrum stórborgum án þess að skýring finnist á þessu.  Þó verður það fljótlega ljóst að engir hryðjuverkamenn gætu staðið á bak við þetta. 

Það er erfitt að fjalla nánar um myndina án þess að skemma fyrir tilvonandi áhorfendum.  Hins má segja að Shyamalan nær sér alls ekki á strik með þessari mynd.  Í fyrsta lagi þá er sagan mjög ótrúverðug og ófrumleg.  Líkast til ætlaðist hann til að vekja fólk til umhugsunar með myndinni en það mistekst heldur betur.  Í öðru lagi þá er myndin illa gerð, leikararnir eru hver öðrum verri og leikstjórnin ekki upp á marga fiskanna.  Þá er handritið afar illa skrifað.

The Happening er líklega versta mynd leikstjórans hingað til.  Myndin er illa gerð og á nokkrum vandræðalegum köflum, hlægileg.  Það er ekki hægt að byggja upp spennu eða áhuga þegar myndin er aðhlátursefni áhorfenda.  Þetta er ein mynd sem bara gengur ekki upp.

 

Davíð Örn Jónsson

 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com