The Golden Compass
 

 

Lyra er ung stúlka sem hefur alist upp innan veggja háskólans.  Hún þekkir ekki til foreldra sinna en Azriel lávarður (Daniel Craig) hefur alið hana upp.  Lyra og vinir hennar eru í hættu stödd.  Undanfarnar vikur hafa börn verið að hverfa og er verum sem nefndar eru gobblerar kennt um verknaðinn.  Á sama tíma fer Azriel lávarður til Svalbarða að rannsaka hið dularfulla „Dust“ í óþökk valdastéttarinnar sem gerir hvað sem er til að hindra að hann nái að klára rannsóknirnar.  Þá birtist hin dularfulla Coulter (Nicole Kidman) sem vingast við Lyru og býður henni að ferðast með sér til Svalbarða að hitta föður sinn.  Það líður þó ekki langur tími áður en hún sýnir sitt sanna andlit og Lyra er komin í hættu.

The Golden Compass er fyrsti hluti þríleiksins sem þekktur er undir nafninu His Dark Materials og má því búast við tveimur kvikmyndum í viðbót við þessa til að klára söguna.  Myndin er vel gerð og mun líklega hljóta verðlaun fyrir.  Myndin er mikið tækniundur og gott dæmi um hversu raunverulegan heim tölvur geta skapað.

Eins má segja að ekkert sé til sparað við leikaravalið.  Það er valinkunnur leikari í hverju hlutverki.  Þar eru Nicole Kidman og Daniel Craig í stærstum hlutverkum og standa sig með príði.  Áhorfendur ættu að kannast við mörg andlit sem og margar raddir þar sem það á við án þess að ég telji það upp hér.  Þá þótti mér persónulega skemmtilegast að sjá meistara Derek Jacobi í litlu hlutverki en hann sést alltof sjaldan á hvíta tjaldinu, einn hæfileikaríkasti leikari samtímans.

Því miður þá á myndin marga stóra galla.  Handritið er afar götótt og leikstjórinn virðist lítið ráða við flókna sögufléttuna.  Fléttan keyrir áfram á ógnarhraða, oft án nauðsynlegra útskýringa.  Líklega hefur verið ákveðið að myndin mætti ekki verða lengri en tveir klukkutímar og hún klippt niður þangað til því marki var náð.  Vegna þessa nær myndin aldrei að hefja sig á loft.  Nær engin spenna byggist upp og áhorfendur ná ekki að tengjast persónunum.

Það er erfitt að mæla með The Golden Compass.  Þrátt fyrir að hafa nánast allt með sér, sterkan leikarahóp, öfluga aðstandendur og vel skrifaða sögu, þá er handritið það illa unnið að ekki er hægt að njóta myndarinnar.  Gallharðir aðdáendur bókanna láta þessa mynd ekki fram hjá sér fara en þessi mynd hún býr ekki til fleiri aðdáendur.

Davíð Örn Jónsson

 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com